Fréttir
Hálfur áratugur liðinn frá kæru ÁTVR vegna ólöglegrar netsölu áfengis. Enn hefur ekkert gerst. Óskiljanlegur seinagangur og sorglegur vitnisburður um vanvirka stjórnsýslu og meðvirk stjórnvöld að mati forvarnasamtaka.
Þann 16. júní 2025, voru nákvæmlega fimm ár síðan ÁTVR kærði ólöglega netsölu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Netsölu sem er ólögleg því hún selur áfengi í smásölu af lager á Íslandi til neytenda. Lögreglan hefur ekki klárað þetta samfélagslega mikilvæga mál á fimm árum, hálfum áratug. Engar skýringar hafa verið gefnar á því. Á meðan spretta upp ólöglegar áfengissölur og selja fyrir milljarða króna og hirða þannig fjármagn sem betur [...]
Áfengi er þekktur krabbameinsvaldur.
,,Sérstök ástæða er til að vekja athygli á sambandi áfengisneyslu og tilurð krabbameina en það eru margir sem ekki vita að áfengi er þekktur krabbameinsvaldur. Jafnvel lítið magn eykur áhættu á krabbameinum og eru þannig engin örugg mörk varðandi neyslu áfengis en áhættan eykst eftir því sem notkunin er meiri.“ Þetta segir Alma D. Möller landlæknir í grein á visir.is í dag, 4. febrúar alþjóðadegi gegn krabbameini. [...]
Drykkja ungmenna virðist vera að aukast til viðbótar við mikla aukningu í notkun nikótíns. Ef efnin eru ekki álitin skaðleg má búast við aukinni neyslu.
Ýmsir hafa undanfarið viðrað áhyggjur af aukinni neyslu áfengis hjá ungmennum, sem virðist koma nú í kjölfar mikillar aukningar á nikótíni. Ef til vill þarf þetta ekki að koma alfarið á óvart ef litið er til þess að seint og illa var brugðist við óheftri markaðssetningu og sölu á nikótíni og aðgengi að áfengi verið aukið mikið undanfarið. Meðal þeirra sem lýsa áhyggjum af þessari [...]
Brýnt að setja reglugerð sem bannar sölu og innflutning á nikótíni í púðum, vökvum eða öðru formi með bragðefnum.
Aðalfundur Læknafélags Íslands (LÍ) sem haldinn var í Kópavogi föstudaginn 20. október síðastliðinn sendi frá sér tvær mjög afdráttarlausar ályktanir, um nikótínpúða annars vegar og hins vegar um nikótínvörur almennt. Í ályktun fundarins um nikótínpúða er athygli heilbrigðisráðherra vakin á þeirri heilsufarsvá sem nikótínpúðar eru á markaði í dag. Notkun hafi aukist í yngri aldurshópum og slysabyrlunum barna fjölgað verulega. Brýnt sé að setja reglugerð [...]
Kveðjuorð: Halldór Árnason
Í dag er borinn til grafar Halldór Árnason fyrrum formaður FRÆ-Fræðslu og forvarna. Stjórn, starfsfólk félagsins og félagsfólk kveður góðan vin og traustan félaga með söknuði og virðingu og sendir fjölskyldu hans og ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Halldór sat í stjórn FRÆ meira og minna frá stofnun félagsins 1993 til ársins 2014, lengstum sem formaður. Eftir að hann hætti stjórnarstörfum var hann kjörinn einn af félagslegum [...]
„Það er ekkert til í því að kannabisolía hafi lækningamátt við krabbameini“
Kannabis „Það er ekkert til í því að kannabisolía hafi lækningamátt við krabbameini“ Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði var í viðtali á Bylgjunni 23. febrúar en hann var gestur þáttarins ásamt Gunnari Bjarna Ragnarssyni, yfirlæknir og krabbameinslæknir á LSH. Þar ræddu þeir um mögulegan lækningamátt kannabis. „Það er mjög einfalt að meta þetta, ef maður skoðar þær rannsóknir sem hafa [...]
Áfengisfrumvarpið enn í nefnd
Áfengisfrumvarpið Áfengisfrumvarpið enn í nefnd Áfengisfrumvarpið var tekið fyrir á fundi allsherjar- og menntamálanefndar á Alþingi síðastliðinn þriðjudag. Til stóð að greiða atkvæði um hvort málið færi út úr nefnd og í 2. umræðu á þinginu. Formaður nefndarinnar ákvað hins vegar að fresta atkvæðagreiðslunni þar sem Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingar, lagði fram nýjar upplýsingar í málinu sem hann vildi að nefndarmenn kynntu [...]
Sala á íslensku neftóbaki hefur aukist mikið
Neftóbak Sala á íslensku neftóbaki hefur aukist mikið Í samantekt í DV og Kjarnanum í dag er fjallað um íslenska neftóbakið, þróun í neyslu og skaðleg innihaldsefni. Þar kemur m.a. fram að í íslenska neftóbakinu ,,Rudda“ er 115% meira nikótín en í sænska munntóbakinu General. Alls er magn nikótíns í íslenska neftóbakinu 2,8 prósent en 0,75 prósent í General snusinu sænska. [...]
Tímamót hjá FRÆ – nýtt aðsetur
FRÆ Tímamót hjá FRÆ - nýtt aðsetur Miðstöð FRÆ var í byrjun ársins flutt úr Brautarholti 4a yfir í Sigtún 42 þar sem þjónustumiðstöð UMFÍ er til húsa í Reykjavík. Staðsetning og starfsaðstaða eru til fyrirmyndar í Sigtúninu en verkefnið Evrópa unga fólksins er þar einnig með sitt aðsetur. Með þessum búferlaflutningum stefnir FRÆ á frekari breytingar og vonar stjórn FRÆ [...]
Áfengi er engin venjuleg neysluvara
Áfengi Áfengi er engin venjuleg neysluvaraÁ morgunfundi IOGT í Norræna húsinu 6. febrúar var fjallað um áfengismál undir yfirskriftinni "áfengi er engin venjuleg neysluvara". Í erindum Róberts Haraldssonar, Margrétar Maríu Sigurðardóttur, Rafns Jónssonar og Kjell-Ove Oskarsson kom fram að verði frumvarp til laga um að selja áfengi í matvöruverslunum samþykkt muni áfengisneysla aukast til muna hér á landi. Afleiðingarnar kæmu fram í auknum [...]
Áfengi getur valdið krabbameinum
Áfengi Áfengi getur valdið krabbameinum Alþjóðakrabbameinssamtökin (UICC) hafa valið 4. febrúar ár hvert til að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini. Nú deyja rúmlega átta milljónir manna í heiminum á ári af völdum krabbameina. Samtökin hafa í tilefni þessa dags í ár ákveðið að vekja athygli á heilbrigðum lífsháttum, skipulegri leit að krabbameini, að meðferð verði í boði fyrir alla og [...]
Engar breytingar á ávana- og vímuefnaneyslu barna á grunnskólaaldri
Börn Engar breytingar á ávana- og vímuefnaneyslu barna á grunnskólaaldri Nýlega kom út skýrslan Ungt fólk 2014-grunnskólar sem unnin var fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Í skýrslunni eru birtar niðurstöður úr rannsóknum Rannsókna & greiningar meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla á Íslandi árið 2014 með samanburði við árin 2000, 2006, 2009 og 2012. Gagnasöfnun fór fram með spurningalistakönnun í febrúarmánuði 2014. Líkt [...]
Góður árangur af núgildandi áfengisstefnu
Áfengisstefna Góður árangur af núgildandi áfengisstefnu Í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, FRÆ sem haldinn var 29. október síðastliðinn eru alþingismenn hvattir til þess að fella frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi um að afnema einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis og gefa sölu áfengis frjálsa. Í ályktuninni er hvatt til þess [...]
Skref aftur á bak í vernd barna
Áfengisfrumvarpið Skref aftur á bak í vernd barnaÍ grein sem Þóra Jónsdóttir lögfræðingur og verkefnastjóri hjá Barnaheillum skrifar á visir.is segir að Barnaheill – Save the Children á Íslandi lýsi yfir áhyggjum vegna tillögu sem liggur fyrir Alþingi um að afnema einkaleyfi ÁTVR á áfengissölu og leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum. Bent er m.a. á að sýnt hafi verið fram á með rannsóknum að aukið [...]
Stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur á móti áfengisfrumvarpi
Áfengisfrumvarpið Stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur á móti áfengisfrumvarpi Stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur samþykkkti á stjórnarfundi 23. október sl. ályktun þar sem eindregið er lagst gegn því að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis verði afnumið og að smásala áfengis verði gefin frjáls eins og frumvarp sem liggur fyrir Alþingi gerir ráð fyrir. Stjórnin segir að núverandi fyrirkomulag hafi gefist vel og að áfengisneysla [...]
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.




