Fréttir2025-03-11T12:28:43+00:00

Fréttir

304, 2025

Innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf. Jóhann Friðrik hefur áður lagt fram hliðstæðar tillögur í þinginu, en þær ekki hlotið brautargengi. Er það miður, því hér er á ferðinni afar brýnt verkfæri stjórnsýslunnar til þess að ,,… meta bein og óbein áhrif stjórnsýsluákvarðana og lagasetningar á lýðheilsu“, eins og segir í tillögunni. Í henni segir [...]

1302, 2023

Málþing: Lýðheilsa og áfengi-hver vilja kúvenda stefnunni og bjóða hættunni heim?

Hátt í hundrað þátttakendur, einstaklingar, fulltrúar stofanna og sérfræðingar, sátu þann 13 febrúar málþing undir heitinu Lýðheilsa og áfengi-hver vilja kúvenda stefnunni og bjóða hættunni heim? sem haldið var  í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Að málþinginu stóðu samtökin FRÆ – Fræðsla og forvarnir ásamt  Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF- Samstarfi félagasamtaka í forvörnum. Málþingsstjóri var Siv Friðleifsdóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Upptökur frá málþingingu má sjá hér. [...]

3006, 2021

Frumvarp um félög til almannaheilla samþykkt við þinglok. Mikilvægum áfanga náð.

Frumvarp um félög til almannaheilla varð loksins að lögum fyrir þinglok fyrr í þessum mánuði. Breiður stuðningur var við frumvarpið. Með þessum lögum verða félagasamtök til almannaheilla aðgreind frá öðrum félagasamtökum, sérstaða þeirra skilgreind og þau skráð sérstaklega hjá fyrirtækjaskrá. Yfirsýn um starfsemi þeirra mun þar af leiðandi batna til muna sem stuðla mun að almennu trausti í þeirra garð, þeirra á milli og gagnvart [...]

3006, 2021

Áföll og ofbeldi – orsakir og afleiðingar

Birtingarmyndir áfalla geta verið með ýmsum hætti en hafa verður í huga að upplifun fólks á áföllum er mismunandi. Atvik sem sumir upplifa sem áfall kann að hafa lítil sem engi áhrif á aðra. Slys, náttúruhamfarir, misnotkun, ofbeldi, vanræksla eða ástvinamissir eru dæmi um áföll. Áhrifin eru ýmiss konar, kvíði, streita og breytingar á hegðun sem oft verður leiðin til þess að takast á við [...]

2511, 2020

Öll áfengisneysla eykur hættu á krabbameini

Í fjölda rannsókna hefur verið sýnt fram á tengsl milli áfengisneyslu og nokkurra tegunda krabbameina. Þess vegna er áfengisneysla flokkuð sem þekktur krabbameinsvaldur hjá Alþjóðakrabbameinsrannsóknarstofnuninni (IARC). Um flest krabbamein gildir að því meira sem drukkið er og því lengri tíma sem drykkjan nær yfir því meiri líkur eru á að fá áfengistengt krabbamein. Að minnka áfengisdrykkju eða - sem er enn betra - að sleppa [...]

2010, 2014

Vika 43 – lífsstíll og sjálfsmynd

Vika 43 Vika 43 - lífsstíll og sjálfsmynd Vika 43 er forvarnaverkefni Samstarfsráðs um forvarnir en einmitt í 43. viku ársins, sem nú er dagana 20. - 26. október, er vakin athygli á ýmsu er varðar forvarnir meðal barna og ungmenna.  Að þessu sinni er áherslan á lífsstíl og sjálfsmynd og vakin athygli á því starfi með ungu fólki sem lítur [...]

1510, 2014

Áskorun til þingmanna

Áfengisfrumvarpið Áskorun til þingmanna Samstarfsráð um forvarnir samþykkti nýlega ályktun vegna frumvarps um að afleggja einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) á smásölu áfengis og gefa smásölu áfengis frjálsa að ákveðnu marki.  Í samþykktinni, sem send var sem áskorun til þingmanna, stendur m.a. „Hér er um að ræða tillögu sem varðar mikla samfélagslega hagsmuni. Við förum þess á leit að fulltrúar okkar á [...]

1807, 2014

Áfengi í matvöruverslanir; gegn lýðheilsumarkmiðum?

Áfengisfrumvarpið Áfengi í matvöruverslanir; gegn lýðheilsumarkmiðum? Unnið er að frumvarpi til laga um að heimila sölu áfengis í verslunum á Íslandi. Embætti landlæknis bendir á að taka þurfi tillit til niðurstaðna rannsókna og leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) áður en slíkar ákvarðanir eru teknar. Landlæknisembættið segir að vanda þurfi til verka áður en ákvarðanir eru teknar um sölu áfengis í verslunum. Áfengi sé [...]

805, 2014

Síðasti fundur Náum áttum í vetur

Náum áttum Síðasti fundur Náum áttum í vetur Á síðasta Náum áttum fundi vetrarins, miðvikudaginn 14. maí n.k., verður fjallað um barnafátækt á Íslandi.  Fyrirlesarar að þessu sinni verða þær Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi, sem fjallar um barnafátækt - brot á mannréttindum barna, Elísabet Karlsdóttir, félagsráðgjafi, MA. verkefnastjóri RBF fjallar um aðstæður reykvískra [...]

1903, 2014

Hert löggjöf um ölvunarakstur

Ölvunarakstur Hert löggjöf um ölvunarakstur Alsherjarnefnd hefur afgreitt þingsályktunartillögu sem felur meðal annars í sér að skoða lækkun refsimarka ölvunaraksturs úr 0,5 prómillum í 0,2. 

Sex þingmenn Framsóknarflokksins mæltu fyrir tillögunni og var hún samþykkt einróma í Alsherjarnefnd í síðustu viku.

Nefndin leggur til þess að þingsályktunartillagan verði samþykkt. Hún hljóðar svo: 

Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að láta yfirfara viðurlög við [...]

703, 2014

Náum áttum – Úti alla nóttina …

Náum áttum Náum áttum - Úti alla nóttina ... Næsti morgunverðarfundur 12. mars nk tekur fyrir málefni sem varða næturlíf og neyslu í íslensku samfélagi.  Erindi flytja þau Jóhann Karl Þórisson - aðalvarðstjóri Lögreglustöð miðborgar "...uns dagur rennur á ný", Eydís Blöndal - varaformaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema, "hvað segir unga fólkið um næturlífið?" og Sveinbjörn Kristjánsson - sérfræðingur frá Embætti landlæknis "áfengisneysla Íslendinga og [...]

2802, 2014

Hert tóbaksvarnalög

Tóbak Hert tóbaksvarnalög Evrópuþingið samþykkti í gær lög um verulega hertar tóbaksvarnir í ríkjum Evrópusambandsins. Reglurnar taka líka gildi hér á landi. Þessi dagur markar þáttaskil í tóbaksvörnum í Evrópu og varðar brautina fyrir tóbakslausa Evrópu, segir Archie Turnbull sem lengi hefur barist fyrir tóbaksvörnum. Meirihluti tóbakspakkans verður þakinn áróðri gegn reykingum og bragðefni eins og mentól verður bannað. Evrópuþingið samþykkti [...]

1302, 2014

Áfengis- og vímuakstur þrefaldast á fimm árum

Ölvunarakstur Áfengis- og vímuakstur þrefaldast á fimm árum Fjórðung banaslysa má rekja til þess að ökumaðurinn var undir áhrifum lyfja, fíkniefna eða áfengis. Nærri þrefalt fleiri voru teknir fyrir lyfja- eða fíkniefnaakstur í fyrra en fimm árum áður. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði hjá sér 331 skipti þar sem ökumaður var tekinn og reyndist vera undir áhrifum fíkniefna- eða lyfja árið 2008. [...]

2501, 2014

Vilja aðhaldsaðgerðir í áfengis- og fíkniefnamálum

Áfengis- og fíkniefnamál Vilja aðhaldsaðgerðir í áfengis- og fíkniefnamálum Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt stefnuyfirlýsingu í áfengis- og fíkniefnamálum til 2020 „Stefna og aðgerðir skulu byggjast á bestu fáanlegu vísindagögnum um skilvirkni og hagkvæmni," segir meðal annars í nýrri stefnuyfirlýsingu stjórnvalda í áfengis- og vímuvörnum. Nýja stefnan gildir til ársins 2020 og hefur verið samþykkt af Kristjáni Þór Júlíussyni, heilbrigðisráðherra. Stefnunni er meðal annars ætlað að tryggja [...]

1301, 2014

Brotthvarf úr framhaldsskólum, íslenskur veruleiki

Brotthvörf Brotthvarf úr framhaldsskólum, íslenskur veruleiki Á fræðslufundi Náum áttum þann 8. nóvember 2010 var fjallað um „Áhrif niðurskurðar til framhaldsskóla á brottfall“, þar sem kynntar voru niðurstöður rannsókna R&G, staðan í Fjölbrautarskólanum við Ármúla og fræðilegur fyrirlestur um hvaða stuðning nemendur í brottfallshættu þurfa. Sjá nánar á slóðinni heimasíðu Náum áttum. Á fyrsta fundi ársins 2014 er ætlunin að fjalla aftur [...]

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

    Fræðsla og forvarnir

    Hverafold 1-3, 112 Rekjavík

    Phone: +354 861 1582

    Go to Top