Gerast félagi

Vertu með okkur í forvörnum!

Með því að gerast félagi í FRÆ, félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, leggur þú forvörnum lið og stuðlar að velferð barna og ungmenna.
Samkvæmt 3. grein félagslaga FRÆ geta allir þeir sem hafa áhuga á eflingu forvarna á Íslandi og styðja markmið félagsins, eins og þau eru skilgreind í 2. grein, orðið félagsmenn. Félagsaðild verður fyrst gild þegar árgjald viðkomandi árs hefur verið greitt.

Sá sem óskar inngöngu í félagið skal sækja um það formlega til stjórnar á rafrænu skráningarformi eða með öðrum rekjanlegum hætti sem stjórn viðurkennir og auglýsir á hverjum tíma.

Í 4. grein segir að aðalfundur ákveði árgjald félagsmanna. Árgjaldi skal varið til eflingar fræðslu- og upplýsingamiðstöðvar í forvörnum eða annarra verkefna sem aðalfundur ákveður. Félagsmaður sem ekki hefur greitt árgjald undangengins árs fyrir aðalfund telst genginn úr félaginu.

Í lögum félagsins er kveðið á um að réttur til setu á aðalfundi sé bundinn við þá sem voru skráðir félagar 31. desember árið á undan og hafa greitt félagsgjald þess árs við upphaf aðalfundar. Stjórn félagsins heldur skrá yfir félagsmenn og staðfestir á fyrsta stjórnarfundi hvers árs uppfærða félagaskrá sem gefur rétt til setu á aðalfundi. Í félagaskrá skal skrá fullt nafn, heimilisfang og kennitölu félagsmanna, einnig netfang sé það til staðar.

Tekið er á móti umsóknum um félagsaðild í gegnum skráningargáttina hér að neðan. Umsækjandi telst fyrst félagi þegar hann hefur fengið staðfestingu félagsins um aðild með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti og greitt félagsgjald yfirstandandi árs.

Skráningarform:

    Ég heimila Fræðslu og forvörnum að nota þær persónuupplýsingar sem fylgja umsókn minni til samskipta við félagið og innheimtu félagsgjalds.*