Fréttir
Góður fundur með Embætti landlæknis – samfélagskostnaður áfengisneyslu og neysla ungmenna.
Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu þann 28. ágúst síðastliðinn, góðan fund með starfsfólki Embættis landlæknis. Fundurinn snerist um samspil lýðheilsu og stóraukinnar netsölu áfengis sem átt hefur sér stað hérlendis í meira en hálfan áratug. Lögreglan hefur nú ákært eina slíka sölu. Netsala þessi hefur farið fram í andstöðu við lýðheilsustjórnvalda til ársins 2030 sem samþykkt var samhljóða á Alþingi. Á fundinum var rætt um þann mikla samfélagskostnað sem óhófleg [...]
Ólöglegar netsölur áfengis sprottið upp hömlulaust.
,,Netsölurnar selja og afhenda áfengi í smásölu til neytenda þar sem áfengið er afhent af innlendum lager á örfáum mínútum eftir að pantað er, eða sent heim. Fyrirkomulag þetta er augljóst brot á einkarétti ÁTVR til smásölu. Þrátt fyrir kæru ÁTVR hefur lögreglan ekki sinnt þeirri kæru í tæp 4 ár. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem ÁTVR heyrir undir, hefur ekkert gert í stöðunni heldur. Róm [...]
Breiðfylking forvarnarsamtaka fundar með félags- og vinnumarkaðsráðherra um lýðheilsu og ólöglega netsölu áfengis.
Breiðfylking forvarnarsamtaka átti fínan fund með félags- og vinnumarkaðsráðherra þann 29. apríl 2024. Erindið var að ræða félagslegar afleiðingar þess ef netsala áfengis, eins og hún er stunduð á Íslandi, verður látin viðgangast. Samtökin láta sig lýðheilsu og félagslega velferð varða. Þau tala fyrir því að velferð fólks gangi framar ólöglegri markaðsvæddri netsölu áfengis. Um þessar mundir ræða samtökin við forystumenn í stjórnmálum um hvernig [...]
Breiðfylking forvarnarsamtaka ræðir við ráðherra um lýðheilsu og ólöglega netsölu áfengis.
Þann 14. mars 2024 átti breiðfylking forvarnarsamtaka fund með dómsmálaráðherra til að undirstrika að lýðheilsa gangi framar markaðsvæddri netsölu áfengis. Óskað var eftir að ræða hvernig tryggja megi að landslögum sé fylgt og lýðheilsa varin eins og lög gera ráð fyrir. Á fundinum voru fulltrúar Samtakanna Fræðslu og forvarna-félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, en [...]
Fjölmennt málþing um lýðheilsu og áfengi.
Hátt í hundrað þátttakendur sátu í dag málþing undir heitinu Lýðheilsa og áfengi-hver vilja kúvenda stefnunni og bjóða hættunni heim? og haldið var í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Að málþinginu stóðu samtökin FRÆ - Fræðsla og forvarnir ásamt Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarfi félagasamtaka í forvörnum. Málþingsstjóri var Siv Friðleifsdóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ, sagði í setningarávarpi að [...]
Árangursríkar leiðir í eineltismálum
Einelti Árangursríkar leiðir í eineltismálum Næsti fundur Náum áttum fjallar um eineltismál, á hverju árangursríkar leiðir byggjast. Fyrirlesarar eru Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstundafræðum sem fjallar um árangursríkar leiðir í eineltismálum, þeir Páll Óskar Valtýsson og Magnús Stefánsson frá Marita fræðslunni sem fjalla um einelti út frá geranda og þolanda og Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, Save the children á [...]
Allraheill – undirskriftarátak á móti frjálsri sölu áfengis
Áfengisfrumvarpið Allraheill - undirskriftarátak á móti frjálsri sölu áfengis Þessa daga fer fram undirskriftarátak á netinu, www.allraheill.is þar sem mótmælt er frumvarpi um frjálsa sölu áfengis. Undirskriftarsöfnunin hófst 31. mars og með henni er verið að undirstrika það sem kemur fram í könnunum, að meirihluti þjóðarinnar er á móti frjálsri sölu áfengis. Það eru Bindindissamtökin IOGT á Íslandi, Núll prósent og Barnahreyfing IOGT á [...]
Áfengisfrumvarp gegn stefnu Reykjavíkurborgar
Áfengisfrumvarpið Áfengisfrumvarp gegn stefnu Reykjavíkurborgar Forvarnarfulltrúar Reykjavíkurborgar telja að frumvarp um afnám einkasölu á áfengi fari gegn stefnu Reykjavíkurborgar í forvörnum og tekur velferðarsvið borgarinnar undir það sjónarmið. Sviðið telur mikilvægt að frumvarpið nái ekki fram að ganga. Í umsögn velferðarsviðs borgarinnar um frumvarp Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að sala áfengis verði heimiluð í matvöruverslunum, segir að mikilvægt sé [...]
Náum áttum fundur um geðheilbrigði barna
Geðheilsa Náum áttum fundur um geðheilbrigði barna Næsti fundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. mars nk. á Grand Hótel að vanda. Að þessu sinni verður fjallað um geðheilbrigðismál barna, viðbrögð og úrræði sem til staðar eru auk þess sem sérstaklega verður sagt frá nýrri nálgun í þessum efnum og sem hafa reynst vel. [...]
Hefur áhyggjur af áhrifum á lýðheilsu og hvetur alþingismenn til þess að fella áfengisfrumvarpið
Áfengisfrumvarpið Hefur áhyggjur af áhrifum á lýðheilsu og hvetur alþingismenn til þess að fella áfengisfrumvarpið Mariann Skar framkvæmdastjóri Eurocare hvetur alþingismenn til þess að fella áfengisfrumvarpið sem nú bíður frekari umræðu og afgreiðslu á Alþingi. Eurocare er samstarfsvettvangur félagasamtaka í Evrópu sem vinna að áfengisvörnum og lýðheilsu. Mariann hefur áhyggjur af afleiðingum þess fyrir heilsu Íslendinga verði frumvarpið samþykkt og segir [...]
Kári á móti áfengisfrumvarpinu
Áfengisfrumvarpið Kári á móti áfengisfrumvarpinu Kári Stefánsson, læknir og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist í viðtali í Morgunblaðinu í dag (5. mars 2015 og Eyjan vitnar líka í) alfarið vera á móti áfengisfrumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi og bíður þar annarrar umræðu. Segir Kári rangt, sem reynt sé að halda fram í frumvarpinu, að áfengi sé ekki hættulegt því staðreyndin sé sú að 12,5 prósent [...]
Fagna aðgerðum lögreglu gegn fíkniefnasölu á samfélagsmiðlum
Samfélagsmiðlar Fagna aðgerðum lögreglu gegn fíkniefnasölu á samfélagsmiðlum Aðalfundur FRÆ sem haldinn var í fyrradag (3. mars) fagnar í ályktun aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn fíkniefnasölu á samfélagsmiðlum. ,,Samfélagsmiðlar eru almennur samskiptavettvangur barna og ungmenna“, segir í ályktuninni, ,,og því brýnt að fíkniefnasalar og aðrir sem láta sig velferð þeirra engu skipta hafi þar ekki ótakmarkað svigrúm. Þá er einnig brýnt [...]
Stjórn FRÆ endurkjörin á aðalfundi
FRÆ Stjórn FRÆ endurkjörin á aðalfundi Stjórn FRÆ (Fræðslu og forvarna, félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu) var endurkjörin á aðalfundi sem haldinn var í gær (3. mars 2015). Formaður félagsins er því áfram Heimir Óskarsson og aðrir með honum í stjórn eru: Sigurður Rúnar Jónmundsson gjaldkeri, Andrea Ýr Jónsdóttir ritari, Halldór Árnason meðstjórnandi og Aldís Yngvadóttir meðstjórnandi. Markmið félagsins er að: [...]
Áfengisfrumvarp: Minnihluti stendur að meirihlutaáliti
Áfengisfrumvarpið Áfengisfrumvarp: Minnihluti stendur að meirihlutaálitiMinnihluti stendur að meirihlutaáliti Allsherjar- og menntamálanefnd afgreiddi frumvarp um smásölu áfengis á fundi sínum í morgun og fer það nú til 2. umræðu á Alþingi. Þó að meirihluti hafi verið fyrir því að afgreiða frumvarpið úr nefndinni stóðu aðeins þrír nefndarmenn af níu að meirihlutaáliti á því.Frumvarpið hefur ekki notið stuðnings meirihluta nefndarinnar en því var engu að [...]
Náum áttum – heimilisofbeldi
Heimilisofbeldi Náum áttum - heimilisofbeldi Næsti fundur Náum áttum fjallar um heimilisofbeldi. Frummælendur verða þær Margrét Ólafsdóttir, aðjúnk við HÍ og Ingibjörg H Harðardóttir, lektor við HÍ, sem fjalla saman um "ofbeldi á heimilli" og Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri Lögreglunnar á höfðuborgarsvæðinu sem fjallar um "nýja nálgun lögreglu og félagsþjónustu". Úr erindi Öldu Hrannar: Heimiliofbeldi – Breytt nálgun lögreglu og félagsþjónustu [...]
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.




