Fréttir2025-03-11T12:28:43+00:00

Fréttir

703, 2025

Skammt að bíða niðurstöðu í kæru vegna ólöglegrar netsölu áfengis.

Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu í fyrradag (5. mars 2025) góðan og upplýsandi fund með Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, ásamt fulltrúum frá ákærusviði embættisins, um stöðu kæru sem ÁTVR lagði fram á hendur aðilum sem selja áfengi í smásölu og afhenda neytendum beint af lager sem er á Íslandi, fyrir tæpum 5 árum, eða þann 16. júní 2020. Í bréfi samtakanna frá 14. febrúar síðastliðnum, þar sem óskað er [...]

1902, 2019

FRÆ og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

FRÆ og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna FRÆ tekur heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fagnandi sem sameiginlegum grunnviðmiðum, eða framkvæmdaáætlun, í þágu mannkyns og jarðar og hefur skilgreint (eða öllu heldur rýnt) starf sitt með tilliti til þeirra. Starfsemi FRÆ er beinlínis liður í því að ná sumum þessara markmiða og sum markmiðin styðja við að ýmis markmið FRÆ komist til framkvæmda. Finna má tengsl starfsemi FRÆ við mörg þessara [...]

1102, 2019

Þeir sem oftast drekka sig ölvaða gera minna úr áhættunni af því en þeir sem drekka sig sjaldan ölvaða

Þeir sem oftast drekka sig ölvaða gera minna úr áhættunni af því en þeir sem drekka sig sjaldan ölvaða Í nýjasta Talnabrunni, Fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, þar sem fjallað er um áfengis- og tóbaksnotkun Íslendinga 2018, kemur fram að sterk fylgni virðist vera milli mats á áhættu og tíðni ölvunardrykkju. Þannig mátu rúmlega 42% þeirra sem drukku sig ölvaða að jafnaði einu sinni í viku [...]

2012, 2018

ALLSGÁÐ : forvarnarverkefni

Börn líta áfengisneyslu öðrum augum en fullorðnir Á vefsíðu verkefnisins Allsgáð sem FRÆ, Fræðsla og forvarnir stendur að eru ábendingar til foreldra og forráðamanna um umgengni við áfengi um jól og áramót. Markmiðið með þessum ábendingum er að minna á að börn líta áfengisneyslu öðrum augum en fullorðnir. Hátíðarhöld í tilefni jóla og áramóta eru börnum sem búa við mikla áfengisneyslu foreldra [...]

712, 2017

ÁHRIF – Lýðheilsa og samfélag

ÁHRIF – Lýðheilsa og samfélag FRÆ – Fræðsla og forvarnir stóðu fyrir málþingi um áfengismál og forvarnir 9. maí 2017. Markmið málþingsins var að vekja athygli á og auka almenna þekkingu og vitund um fjölþætt áhrif áfengis á lýðheilsu og samfélag. Aukin þekking hvað þetta varðar eflir skilning á mikilvægi forvarna og lýðheilsusjónarmiða við stefnumörkun í áfengismálum. LÝÐHEILSA OG SAMFÉLAG Ráðstefnan var tvískipt. [...]

2410, 2012

Spyr um heilsu og líðan landsmanna

Heilsa Spyr um heilsu og líðan landsmanna Embætti landlæknis stendur um þessar mundir fyrir viðamikilli rannsókn um heilsu og líðan landsmanna. Um 10.000 fullorðnir Íslendingar munu fá sendan spurningalista sem þeir eru beðnir um að svara, en góð þátttaka er nauðsynleg til að tryggja gæði rannsóknarinnar. Hlutverk Embættis landlæknis er m.a. að veita ráðgjöf til almennings og stjórnvalda. Til að [...]

1210, 2012

Náum áttum – óbein áfengisneysla

Náum áttum Náum áttum – óbein áfengisneysla Á morgunverðarfundi Náum áttum miðvikudaginn 17. október verður fjallað um áhrif áfengisneyslu á aðra en neytandann sjálfan.  Erindi flytja þeir Rafn Jónsson, verkefnastjóri áfengis- og vímuvarna hjá Landslæknisembættinu, sem segir frá niðurstöðum rannsókna á umfangi óbeinnar áfengisneyslu (passive drinking) á einstaklinga og samfélag og Lárus Blöndal, sálfræðingur hjá SÁÁ segir frá lífi barna [...]

910, 2012

Lagt til að lækka leyfilegt áfengismagn í blóði ökumanna

Ölvunarakstur Lagt til að lækka leyfilegt áfengismagn í blóði ökumanna Í stjórnarfrumvarpi til umferðarlaga sem innanríkisráðherra mælti fyrir á Alþingi 27. september síðastliðinn (2012) er lagt til að lækka leyfilegt áfengismagn í blóði  ökumanna úr 0,5‰ í 0,2‰. Fleiri þættir snúa að áfengis- og vímuefnaneyslu, s.s. að ávana- og fíkniefni skuli mæld í blóði ökumanns en ekki blóði eða þvagi eins og [...]

310, 2012

Norðurlandaráð vill reyklaus Norðurlönd árið 2040

Reykingar Norðurlandaráð vill reyklaus Norðurlönd árið 2040 Mikil andstaða var frá fulltrúum stjórnmálaflokka sem teljast lengst til hægri og vinstri, en meirihluti fulltrúa í velferðarnefnd Norðurlandaráðs greiddi atkvæði með mjög metnaðarfullri tillögu um að Norðurlönd ættu að vera reyklaus árið 2040. Tillagan er hluti af heildarstefnu um áfengis- og tóbaksmál sem stjórnmálamenn í Norðurlandaráði samþykktu á fundi í Gautaborg á fimmtudag (27. [...]

2109, 2012

Leggur aftur fram frumvarp um áfengisauglýsingar

Auglýsingar Leggur aftur fram frumvarp um áfengisauglýsingar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur á ný lagt fram frumvarp um breytingu á áfengislögum. Með frumvarpinu er stefnt að því að gera núgildandi bann við áfengisauglýsingum bæði skýrara og skilvirkara. Áfengisauglýsingar eru bannaðar hér á landi og er því lögð sérstök áhersla á það í frumvarpinu að koma í veg fyrir að farið sé [...]

1409, 2012

Ástralir með ströng lög um tóbak

Tóbak Ástralir með ströng lög um tóbak Hæstiréttur í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að lög sem nýlega voru sett þar í landi um merkingar á tóbakspakkningum standist stjórnarskrá. Samkvæmt nýju lögunum má ekki selja sígarettu öðruvísi en í ólífulituðum pakkningum með viðvörunum um skaðsemi reykinga. Hefðbundnar pakkningar sígarettuframleiðendanna verða bannaðar. Helstu tóbaksframleiðendur í heimi létu reyna á þessi [...]

1409, 2012

Skattlagning á neftóbak tvöfölduð

Neftóbak Skattlagning á neftóbak tvöfölduð Í nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að skattlagning á neftóbak verði tvöfölduð. Skattlagning á neftóbak hingað til er talin hafa verið óeðlilega lág samanborið við annað tóbak. Of lág skattlagning á neftóbak þykir hafa leitt af sér óeðlilega þróun í neyslu þess hérlendis að undanförnu, þ.e. neyslan hefur aukist meira en [...]

1209, 2012

Fastur á netinu – Náum áttum

Náum áttum Fastur á netinu - Náum áttum Á næsta morgunverðarfundi Náum áttum 19.  september nk. verður fjallað um tölvufíkn, áhrif mikillar tölvunotkunar á ungmenni, forvarnir og úrræði.  Á fundinn mæta með erindi þau Guðlaug Júlíusdóttir, félagsráðgjafi á BUGL, sem fjallar um „valdmiklar tölvur - hver ræður heima?“ og Hafþór Birgisson, tómstunda- og félagsmálafræðingur með erindið „jákvæð netnotkun, ekki verður bókvit [...]

709, 2012

FASD dagurinn – alþjóðadagur um fósturskaða vegna áfengisneyslu móður

Meðganga FASD dagurinn - alþjóðadagur um fósturskaða vegna áfengisneyslu móður Sunnudagurinn 9. september er tileinkaður fósturskaða af völdum áfengisneyslu móður (Foetal Alcohol Spectrum Disorders FASD). Vakin er athygli á að 1-2% barna í Evrópu fæðast með alvarlega fötlun eða líkamsgalla vegna áfengisneyslu móður á meðgöngu. Engin leið er að leiðbeina fólki um hversu mikið magn áfengis þarf til að valda [...]

2808, 2012

Kannabisneysla veldur varanlegri greindarskerðingu

Kannabis Kannabisneysla veldur varanlegri greindarskerðingu Ungt fólk sem neytir kannabisefna, reykir hass og marjúana, sætir gjarnan mikilli og varanlegri greindarskerðingu. Skerðingu sem ekki gengur að fullu  til baka þótt neyslu sé hætt. Þetta er staðfest í viðamikilli rannsókn sérfræðinga á Nýja Sjálandi. Fylgst var grannt með rúmlega þúsund manns í tvo áratugi, frá barnsaldri og fram á fertugsaldur, og greind [...]

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

    Fræðsla og forvarnir

    Hverafold 1-3, 112 Rekjavík

    Phone: +354 861 1582

    Go to Top