ÁHRIF – Lýðheilsa og samfélag

FRÆ – Fræðsla og forvarnir stóðu fyrir málþingi um áfengismál og forvarnir 9. maí 2017. Markmið málþingsins var að vekja athygli á og auka almenna þekkingu og vitund um fjölþætt áhrif áfengis á lýðheilsu og samfélag. Aukin þekking hvað þetta varðar eflir skilning á mikilvægi forvarna og lýðheilsusjónarmiða við stefnumörkun í áfengismálum.

LÝÐHEILSA OG SAMFÉLAG

Ráðstefnan var tvískipt. Annars vegar var sjónum beint að þekkingu á margþættum heilsufarslegum áhrifum og sjúdómabyrði vegna áfengisneyslu og þekktum áhrifum á ýmsa sjúkdóma, s.s. fíknsjúkdóma og krabbamein. Hins vegar var sjónum beint að samfélagslegum áhrifum áfengisneyslu, s.s. á löggæslu, félagsmálum, afbrotum og ofbeldi og áhrifum áfengisneyslu á aðra en neytandann sjálfan.

Í þessu tölublaði Áhrifa eru viðtöl við fyrirlesarana á málþinginu.

Deila frétt

Nýlegar fréttir

Safn

Flokkar