Fréttir2025-03-11T12:28:43+00:00

Fréttir

2702, 2025

Sandra nýr formaður FRÆ.

Á aðalfundi FRÆ, sem haldinn var 24. Febrúar síðastliðinn, urðu formannaskipti í FRÆ. Sandra Heimisdóttir var þar kjörin formaður í stað Heimis Óskarssonar, sem verið hefur formaður frá árinu 2015. Þar áður var Heimir í stjórn félagsins frá árinu 2012. Önnur í stjórn FRÆ voru kjörin: Linda Björg Þorgilsdóttir, Guðlaug Birna Guðjónsdóttir, Heimir Óskarsson og Aðalsteinn Gunnarsson. Sandra hefur setið í stjórn FRÆ frá árinu 2017 og þekkir því vel [...]

1805, 2017

Enn eykst andstaða landsmanna við áfengisfrumvarpið. Vandséð að flutningsmenn gangi erinda almennings eða samfélags.

Áfengisfrumvarp Enn eykst andstaða landsmanna við áfengisfrumvarpið. Vandséð að flutningsmenn gangi erinda almennings eða samfélags. Niðurstaða nýrrar könnunar Rúnars Vilhjálmssonar, félagsfræðiprófessors við Háskóla Íslands  er að nærri sjö af hverjum tíu Íslendingum eru mótfallnir frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi um að heimila sölu á áfengi í verslunum. Fram kemur að 69,2 prósent landsmanna eru andvíg því að frumvarpið verði að lögum [...]

1105, 2017

Velheppnað málþing um áfengismál

Áfengismál Velheppnað málþing um áfengismál Málþingið Áfengi, heilsa og samfélag sem FRÆ stóð fyrir síðastliðinn þriðjudag, 9. maí, í samstarfi við fleiri aðila tóks vel og lýstu þátttakendur yfir mikill ánægju með það. Málþingið var í tveimur hlutum. Annars vegar var sjónum beint að þekkingu á margþættum heilsufarslegum áhrifum og sjúdómabyrði vegna áfengisneyslu og þekktum áhrifum á ýmsa sjúkdóma, s.s. fíknsjúkdóma [...]

305, 2017

Málþing um áfengismál

Áfengismál Málþing um áfengismál Fræðsla og forvarnir boða til málþings um áfengismál þriðjudaginn 9. maí næstkomandi í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Krabbameinsfélag Reykjavíkur, SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, IOGT á Íslandi og Embætti landlæknis. Fyrirlesarar eru sérfræðingar á ýmsum sviðum áfengismála eða sviðum sem tengjast áfengismálum. Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ, Fræðslu og forvarna og formaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur. og Rafn Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- [...]

501, 2017

Hefur áhyggjur af vaxandi notkun rafretta hjá börnum og ungmennum

Rafsígarettur Hefur áhyggjur af vaxandi notkun rafretta hjá börnum og ungmennum  Í heimildarmynd frá BBC, Rafrettur- gæfa eða glapræði, er fjallað um rafrettur og áhrif þeirra á heilsuna og umhverfið. Í henni kemur m.a. fram að eftir einungi mánaðarnotkun greindust bólgur í öndunarvegi og í slímhúð hafði svokölluðum átfrumum fjölgað í lungunum en þær framkalla hvata sem geta skaðað öndunarveginn ef áreitið [...]

1808, 2012

Finnst gert ráð fyrir að ungt fólk vilji neyta áfengis

Rannsókn Finnst gert ráð fyrir að ungt fólk vilji neyta áfengis Í nýrri breskri rannsókn um líf og lífsvenjur ungs fólks á aldrinum 16-25 ára kemur fram að unga fólkið telur að forvarnir og fræðsla um áfengi geri ráð fyrir að ungt fólk vilji og ætli sér að drekka áfengi. Þvert á móti vill það að aukin áhersla verði lögð á að [...]

1708, 2012

Ráðgjafaskólinn innritar nemendur

Ráðgjafar Ráðgjafaskólinn innritar nemendur Í byrjun næsta mánaðar hefst nám í Ráðgjafaskólanum en innritun líkur 1. september.  Skólinn verður með sama sniði og undanfarin misseri en skólinn er fyrir þá sem starfa við, eða ætla sér að starfa við ráðgjöf á ýmsum sviðum, s.s. á geðsviði, á áfangaheimilum og öldrunarheimilum, fyrir unglinga og fyrir áfengis- og fíkniefnaneytendur og fjölskyldur þeirra.  Námið [...]

1008, 2012

Jákvæð áhrif kreppunnar á heilsu Íslendinga

Heilsa Jákvæð áhrif kreppunnar á heilsu Íslendinga Samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var í samstarfi rannsóknarteymis frá Háskóla Íslands, Robert Wood Johnson Medical Center og Rider háskólanum hafði efnahagshrunið á Íslandi 2008 góð áhrif á heilsu þjóðarinnar. Í kjölfar hrunsins drógu Íslendingar úr lífstíl sem hefur skaðleg áhrif á heilsuna og tóku upp lífsstíl sem stuðlar að betri heilsu. Tinna [...]

108, 2012

Nýr lýðheilsusjóður opnar fyrir umsóknir

Heilsa Nýr lýðheilsusjóður opnar fyrir umsóknir Embætti landlæknis hefur auglýst umsóknir um styrki úr nýjum lýðheilsusjóði sem hefur verið stofnaður á grunni fyrrum forvarnasjóðs. Hlutverk hins nýja sjóðs er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu, bæði innan og utan embættisins, í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Tekjur lýðheilsusjóðs eru: 1% af innheimtu áfengisgjaldi; 0,9% af [...]

2607, 2012

Ný vefsíða um áfengi og krabbamein

Vefsíður Ný vefsíða um áfengi og krabbamein www.alcoholandcancer.eu Þessi vefsíða er unnin í samstarfi AEC (Association of European Canser Leagues) og Eurocare og miðar að því að upplýsa Evrópubúa um tengsl á milli áfengis og krabbameins. 10% krabbameina hjá körlum og 3% hjá konum má rekja til neyslu áfengis. Fyrstu óyggjandi tengsl á milli áfengis og krabbameins voru birtar árið [...]

1007, 2012

Vefútgáfa ÁHRIFA komin út

Vefsíður Vefútgáfa ÁHRIFA komin út Tímaritið ÁHRIF hefur komið út síðan 1994 en blaðið kom ekki út í fjögur ár 1999 - 2003.  Fyrsta tölublað 2012 er því 15. árgangur útgáfunnar en frá 2009 hefur tímaritið komið út í vefútgáfu Ísalfoldarprentsmiðju, sem hefur einnig prentað blaðið undanfarin misseri.  ÁHRIF eru eina ritið sinnar tegundar á Íslandi og fjallar á fjölbreyttan hátt um vímuefnamál [...]

1206, 2012

Kynbætt kannabis og aukin framleiðsla

Kannabis Kynbætt kannabis og aukin framleiðsla Kynbætur á kannabisplöntum sem framleiddar eru hér á landi hafa orðið til þess að marijúana er sterkara en nokkru sinni fyrr. Kannabisframleiðslan hefur margfaldast eftir hrun og um fjögur hundruð mál koma árlega inn á borð lögreglunnar.Fíkniefnamarkaðurinn á Íslandi veltir milljörðum árlega en ekki er ljóst hversu þungt kannabissala vegur af honum. Miðað við fjölda mála hjá [...]

2205, 2012

Sumarhátíðir – sýnum ábyrgð!

Náum áttum Sumarhátíðir - sýnum ábyrgð! Miðvikudaginn 23. maí nk heldur Náum áttum - fræðslu- og forvarnahópurinn síðasta fund vetrarins á Grand hótel kl. 08.15 - 10.00.  Fjallað verður um sumarhátíðir á Íslandi, framkvæmd þeirra og ábyrgðina sem fylgir hátíðarhaldi eins og þjóðhátíð, bæjarhátíð, útihátíð eða hestamóti.  Farið verður yfir atriði eins og markmið þeirra, regluverk og viðbúnað sveitarfélags og [...]

1204, 2012

Áfram um velferð barna

Náum áttum Áfram um velferð barna Á næsta morgunverðarfundi Náum áttum 18. apríl nk. verður áfram fjalla um velferð barna, nú þremur árum eftir Hrun. Að þessu sinni flytja erindi þær Sigríður Jónsdóttir, félagsfræðingur hjá velferðarráðuneytinu, sem fjallar um Félagsvísa meðal ungs fólks og Ellý A. Þorsteinsdóttir, starfandi sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem fjallar um aðgerðaráætlun Velferðarsviðs og þróun í eftirspurn [...]

304, 2012

Áfengissalan áfram hjá ÁTVR

Einkaleyfið Áfram um velferð barna Breytist ekki með inngöngu í Evrópusambandið Gangi Ísland í Evrópusambandið hyggjast stjórnvöld viðhalda núverandi fyrirkomulagi á verslun með áfengi og tóbak sem grundvallast á einkaleyfi ÁTVR á áfengis- og tóbakssölu. Um þessi mál er fjallað í áttunda samningskafla Íslands og Evrópusambandsins um samkeppnismál. Í samningsmarkmiðum Íslands kemur fram að íslensk stjórnvöld stefni að því að [...]

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

    Fræðsla og forvarnir

    Hverafold 1-3, 112 Rekjavík

    Phone: +354 861 1582

    Go to Top