Fréttir2025-03-11T12:28:43+00:00

Fréttir

1305, 2026

Forvarnasamtök fagna því að ríkisstjórnin í svari sínu til ESA kveði afdráttarlaust upp úr um að netsala áfengis, eins og hún er framkvæmd á Íslandi, sé ólögleg.

Breiðfylking forvarnarsamtaka, félögin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum fagna að í svari ríkisstjórnarinnar við fyrirspurn ESA um um netsölu áfengis, sölu áfengis í fríhöfninni og lögin um sölu áfengis af framleiðslustað kveði ríkisstjórnin afdráttarlaust upp úr um að netsala áfengis eins og hún er framkvæmd á Íslandi er ólögleg. Forsaga málsins er sú að [...]

3001, 2025

Áfengissala á íþróttaviðburðum, fyrirmyndir í stúkunni, bjórdolla í annarri og forvarnaáætlun í hinni.

Félag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa (FÍÆT) hefur sent sveitarfélögum landsins bréf til þess að mótmæla áfengissölu á íþróttaviðburðum á landinu. Félagið lýsir þar yfir þungum áhyggjum vegna þessa og segir hana auka hættu á óviðeigandi hegðun. Fyrirmyndirnar séu líka í stúkunni. Áfengissala á íþróttaleikjum hefur aukist á Íslandi á undanförnum árum, einkum á leikjum meistaraflokka og algengt er að sjá áhorfendur með bjór. Stundum hafa leyfamál ekki verið í lagi varðandi þessa áfengissölu. [...]

2501, 2025

Ef áfengisgjaldið ætti að vera það sama nú og árið 1998 þyrfti það að hækka um 35 %.

,,Áfengisgjald eða betur nefnt áfengisskaðagjald – þarf að hækka í samræmi við verðbólgu og verðlagsvísitölu. Sérstaklega þarf að leiðrétta að gjaldið hefur ekki hækkað í samræmi við verðbólgu síðustu áratugi.  Ef við lítum á áfengisgjaldið 1998 og nú 1. janúar 2025, þá þarf að hækka gjaldið um 35 %.“ Þetta segir Björn Sævar Einarsson, formaður IOGT á Íslandi, í sparnaðarráði sem hann sendi í Samráðsgátt ríkisstjórnarinnar. Björn birtir töfluna [...]

2401, 2025

Spörum milljarða með því að takmarka aðgengi að áfengi.

Meðal tillagna sem ríkisstjórnin óskaði eftir um hvernig hægt er að hagræða í rekstri ríkisins er sparnaðarráð sextán félagasamtaka og forvarnasamtaka um að takmarka aðgengi að áfengi. Sérstaklega er bent á ávinning þess að hafa smásölu áfengis í hendi stjórnvalda, eða eins og er hér á landi í höndum Áfengis- og tóbaksverslunarinnar. Tillagan hefur í raun tvöfalt vægi, annars vegar efnahagslegt og hins vegar snýr hún að bættri lýðheilsu [...]

2301, 2025

Húsfyllir á morgunfundi Náum áttum.

Húsfyllir var á morgunfundi Náum áttum sem haldinn var 22. janúar síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var: Ungmenni og vímuefnaneysla. Fyrirlesarar voru: Jóna Margrét Ólafsdóttir, lektor á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands, sem fjallaði um áhrif vímuefnaneyslu unglinga á félagslega heilsu þeirra og virkni og Lára Sigurðardóttir, læknir á Vogi, sem fjallaði um áhrif áfengis og taugakerfi ungmenna. Silja Jónsdóttir,  sálfræðingur barna og unglinga sem eiga foreldri með fíknivanda hjá SÁÁ  og Bjarki Jóhannsson [...]

1510, 2019

Lögleyfing kannabiss ekki skilað tilætluðum árangri

Lögleyfing kannabiss ekki skilað tilætluðum árangri. Dagana 11. og 12. október síðastliðinn stóð NordAN, sem er samstarfsvettvangur félagasamtaka á Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum um stefnumörkun og forvarnir í ávana- og vímuefnamálum, fyrir árlegri ráðstefnu sinni sem haldin var að þessu sinni í Helsinki. Yfirskrift ráðstefnunnar var ,,áfengi og vímuefni í samfélagi breytinga“ með tilvísun í að ávana- og vímuefnamál eru ekki undanþegin breytingum og við því [...]

410, 2019

Vitundarvakning um áhrif rafsígaretta

Vitundarvakning um áhrif rafsígaretta. Mikil vitundarvakning hefur orðið á áhrifum og skaðsemi rafsígaretta á stuttum tíma. Stöðugt koma fram vísbendingar um skaðsemi þeirra og fréttir af veikindum og mögulegum dauðsföllum sem rakin eru til notkunar á rafsígarettum. Viðbrögð við þessu endurspeglast í hertum takmörkunum á notkun og dreifingu á rafsígarettum og  ákalli um að spyrna þurfi við fótum og herða regluverk og eftirlit með sölu [...]

310, 2019

Frumvarp til laga um félög til almannaheilla

Frumvarp til laga um félög til almannaheilla. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur lagt fram á alþingi frumvarp um almannaheillafélög. Frumvarpið heimilar félögum og félagasamtökum að skrá sig sérstaklega sem félag til almannaheilla og fá þannig endinguna .fta í fyrirtækjaskrá. Í frumvarpinu felast hagnýtar leiðbeiningar um stofnun og rekstur almannaheillafélaga þar sem vandaðir stjórnarhættir og fjármál eru höfð að leiðarljósi. Í frumvarpinu er í raun kveðið [...]

905, 2019

Slysum vegna fíkniefnaaksturs fjölgar

Slysum vegna fíkniefnaaksturs fjölgar. Í skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi árið 2018 sem komin er út kemur fram að slysum vegna  fíkniefnaaksturs hefur fjölgað, svo og slysum vegna framanákeyrslna. Hins vegar hafa ungir ökumenn sjaldan staðið sig betur og bæta sig mikið á milli ára. Slösuðum bifhjólamönnum, hjólreiðamönnum og fótgangandi fækkar á milli ára. Erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis slasast í minni mæli en undanfarin ár [...]

103, 2019

Loksins komin lög um rafsígarettur. Sambærilegar reglur um sölu þeirra og sölu sígaretta.

Loksins komin lög um rafsígarettur. Sambærilegar reglur um sölu þeirra og sölu sígaretta. Ný lög um rafsígarettur og áfyllingar fyrir þær taka gildi í dag. Í lögunum er kveðið á um innflutning, markaðssetningu, notkun og öryggi vörunnar og ráðstafanir til að sporna við notkun barna á rafsígarettum. Engin sérlög hafa gilt um rafsígarettur fyrr en nú. Kannanir hafa sýnt að það eru fyrst og fremst [...]

2002, 2019

Persónuvernd barna. Netið gleymir engu

Persónuvernd barna. Netið gleymir engu Á vel sóttum morgunverðarfundi Náum áttum samstarfshópsins í dag var fjallað um persónuvernd barna og áskoranir í skólasamfélaginu sem tengjast henni. Það er auðvelt að misnota persónuupplýsingar. Það þarf því til dæmis að huga vel að því sem við setjum á Netið og hafa hugfast að Netið gleymir engu. Skólar þurfa að setja sér verklagsreglur um söfnun, miðlun og varðveislu [...]

1902, 2019

FRÆ og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

FRÆ og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna FRÆ tekur heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fagnandi sem sameiginlegum grunnviðmiðum, eða framkvæmdaáætlun, í þágu mannkyns og jarðar og hefur skilgreint (eða öllu heldur rýnt) starf sitt með tilliti til þeirra. Starfsemi FRÆ er beinlínis liður í því að ná sumum þessara markmiða og sum markmiðin styðja við að ýmis markmið FRÆ komist til framkvæmda. Finna má tengsl starfsemi FRÆ við mörg þessara [...]

1102, 2019

Þeir sem oftast drekka sig ölvaða gera minna úr áhættunni af því en þeir sem drekka sig sjaldan ölvaða

Þeir sem oftast drekka sig ölvaða gera minna úr áhættunni af því en þeir sem drekka sig sjaldan ölvaða Í nýjasta Talnabrunni, Fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, þar sem fjallað er um áfengis- og tóbaksnotkun Íslendinga 2018, kemur fram að sterk fylgni virðist vera milli mats á áhættu og tíðni ölvunardrykkju. Þannig mátu rúmlega 42% þeirra sem drukku sig ölvaða að jafnaði einu sinni í viku [...]

2012, 2018

ALLSGÁÐ : forvarnarverkefni

Börn líta áfengisneyslu öðrum augum en fullorðnir Á vefsíðu verkefnisins Allsgáð sem FRÆ, Fræðsla og forvarnir stendur að eru ábendingar til foreldra og forráðamanna um umgengni við áfengi um jól og áramót. Markmiðið með þessum ábendingum er að minna á að börn líta áfengisneyslu öðrum augum en fullorðnir. Hátíðarhöld í tilefni jóla og áramóta eru börnum sem búa við mikla áfengisneyslu foreldra [...]

712, 2017

ÁHRIF – Lýðheilsa og samfélag

ÁHRIF – Lýðheilsa og samfélag FRÆ – Fræðsla og forvarnir stóðu fyrir málþingi um áfengismál og forvarnir 9. maí 2017. Markmið málþingsins var að vekja athygli á og auka almenna þekkingu og vitund um fjölþætt áhrif áfengis á lýðheilsu og samfélag. Aukin þekking hvað þetta varðar eflir skilning á mikilvægi forvarna og lýðheilsusjónarmiða við stefnumörkun í áfengismálum. LÝÐHEILSA OG SAMFÉLAG Ráðstefnan var tvískipt. [...]

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

    Fræðsla og forvarnir

    Hverafold 1-3, 112 Rekjavík

    Phone: +354 861 1582

    Go to Top