Fréttir
Áfengissala á íþróttaviðburðum, fyrirmyndir í stúkunni, bjórdolla í annarri og forvarnaáætlun í hinni.
Félag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa (FÍÆT) hefur sent sveitarfélögum landsins bréf til þess að mótmæla áfengissölu á íþróttaviðburðum á landinu. Félagið lýsir þar yfir þungum áhyggjum vegna þessa og segir hana auka hættu á óviðeigandi hegðun. Fyrirmyndirnar séu líka í stúkunni. Áfengissala á íþróttaleikjum hefur aukist á Íslandi á undanförnum árum, einkum á leikjum meistaraflokka og algengt er að sjá áhorfendur með bjór. Stundum hafa leyfamál ekki verið í lagi varðandi þessa áfengissölu. [...]
Einkasala ríkisins á smásölu áfengis er mikilvægur hornsteinn í árangursríkri áfengismálastefnu Íslendinga
Áfengisfrumvarpið Einkasala ríkisins á smásölu áfengis er mikilvægur hornsteinn í árangursríkri áfengismálastefnu ÍslendingaÁ ráðstefnu og ársþingi NordAN (Nordic Alcohol and Drug Policy Network) sem haldinn var í Helsinki 23. október síðastliðinn var m.a. rætt um stöðu og þróun áfengismála á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Sérstaklega var rætt um stefnumörkun í þessum málum, pólitíska umræðu og framtíðarsýn.Í umræðum lýstu margir yfir undrun sinni á að [...]
Nýr norrænn upplýsingavefur um áfengismál
Vefir Nýr norrænn upplýsingavefur um áfengismál Á nýjum upplýsingavef sem norrænu félagasamtökin NordAN hafa opnað eru uppýsingar um stöðu áfengismála á Norðurlöndunum og í löndum við Eystrasalt. Efnið er skemmtilega uppsett og ætlunin að á þennan upplýsingavef verði í framtíðinni sett allt það nýjast um stöðu áfengisvarna í þessum löndum. Málefni sem tengjast áfengisneyslu og stefnu stjórnvalda í áfengismálum eru tíunduð í töflum og [...]
Ungmenni drekka meira í löndum með mikla áfengisneyslu
Ungmenni Ungmenni drekka meira í löndum með mikla áfengisneyslu Stór alþjóðleg rannsókn sýnir að það eru bein tengsl á milli drykkjuvenja ungmenna og þess hversu mikils áfengis fullorðnir í viðkomandi landi neytir, þ.e. hve heildarneysla áfengis (meðaltal) er. Í löndum þar sem fullorðnir drekka mikið - eins og í Danmörku og Litháen – hafa einnig hlutfallslega fleiri 15 ára ungmenni drukkið [...]
Áfengissalan eykst um 0.8% – meira rauðvín en minna hvítvín
Ungmenni Áfengissalan eykst um 0.8% – meira rauðvín en minna hvítvín Áfengisverslun í júní jókst um 5 prósent að raunvirði í samanburði við júní 2014. Á fyrri helmingi ársins jókst salan í krónum talið um 3,3 prósent. Leiðrétt fyrir vikudaga- og árstíðarbundnum þáttum jókst velta áfengis í júní um þrjú prósent frá sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í frétt [...]
Slysum vegna ölvunaraksturs fækkar
Ölvunarakstur Slysum vegna ölvunaraksturs fækkar Í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2010 kemur fram að umtalsverð fækkun hefur orðið á slysum þar sem ölvaðir ökumenn koma við sögu. Fjöldi ölvaðra ökumanna sem valda slysum með meiðslum eða dauða voru 44 í fyrra en árið á undan voru þeir 51. Þegar slysatölur undanfarinna 10 ára eru skoðaðar þá kemur í ljós að [...]
Ný ESPAD rannsókn
Rannsókn Ný ESPAD rannsókn Verulega hefur dregið úr áfengisdrykkju ungmenna á síðustu árum. Um fjórðungur fimmtán til sextán ára barna hefur orðið drukkinn. Þetta kemur fram í niðurstöðum Evrópsku vímuefnarannsóknarinnar sem nær til fimmtán Evrópulanda og er framkvæmd á fjögurra ára fresti. Könnunin sýnir að stórlega hefur dregið úr áfengisneyslu fimmtán og sextán ára unglinga á Íslandi. Árið 1995 neytti [...]
Húsfyllir á málþingi Bara gras? á Akureyri
Bara gras? Húsfyllir á málþingi Bara gras? á Akureyri Málþing Bara gras? var haldið í Hofi á Akureyri fyrir skemmstu. Mikill áhuga foreldra var fyrir þessu fræðsluþingi og fylltist minni salurinn (Hamrar) í Hofi svo stækka varð sætispláss og opna stæði útá gögnusvæði og má því reikna með að rúmlega 300 manns hafi sótt þingið. Fyrirlesurum var ákaflega vel tekið [...]
Náum áttum – morgunverðarfundur
Náum áttum Náum áttum - morgunverðarfundur Síðasti morgunverðarfundur Náum áttum - fræðsluhópsins, verður á Grand hótel miðvikudaginn 11. maí nk. og hefst kl. 08.15 með morgunverði. Yfirskrift fundarins er „Eru hagsmunir barna hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku í forsjár- og umgengnismálum“. Frummælendur að þessu sinni eru Eyrún Guðmundsdóttir, deildarstjóri sifja- og skiptadeildar Sýslumannsembættisins í Reykjavík - Feril forsjár- og umgengnismála, [...]
Bara gras? fræðsla til foreldra
Bara gras? Bara gras? fræðsla til foreldra Mánudaginn 4. apríl var hleypt af stokkunum fræðsluverkefninu Bara gras? sem er hluti af Verum vakandi, hvatningaátaki á meðal foreldra. Á sama tíma var haldið fyrsta málþing Bara gras? í Rimaskóla í Reykjavík þar sem foreldrum var boðið að hlíða á fyrirlestra um skaðsemi kannabis. Um 100 foreldrar mættu á málþingið ásamt fjölmiðlafóki en fyrirlestarar [...]
Foreldrar framhaldsskólanema hafa áhyggjur af drykkju og annarri neyslu
Bara gras? Foreldrar framhaldsskólanema hafa áhyggjur af drykkju og annarri neyslu Í fréttatilkynningu frá Heimili og skóla – landssamtaka foreldra segir að samtökin hafi fundað með foreldraráðsfulltrúum framhaldsskólanna, mánudaginn 15. febrúar 2011. Fundurinn hafi einkum verið ætlaður til að efla starf foreldraráða í framhaldsskólum sem er lögbundið fram að 18 ára aldri nemenda. Í fréttatilkynningunni segir að mikilvægt sé að [...]
Vanlíðan barna, orsök, einkenni og úrræði
Náum áttum Vanlíðan barna, orsök, einkenni og úrræði Fræðslu- og forvarnahópurinn Náum áttum verður með morgunverðarfund á miðvikudaginn kemur, 23. mars kl. 08.15 - 10.00 á Grand hótel. Að þessu sinni er fjallað um aðstæður barna sem verða fyrir ofbeldi, orsökum þess, afleiðingum og úrræðum sem í boði eru. Fyrirlesarar um þessi mál verða þau Ólöf Ásta Farestveit, forstöðumaður Barnahúss, Ragnheiður Ósk [...]
Ársþing 0% ályktar gegn lækkun áfengiskaupaaldurs
Áfengi Ársþing 0% ályktar gegn lækkun áfengiskaupaaldurs Laugardaginn 26. febrúar hélt 0% Landsþing sitt í Vinabæ. 0% eru samtök fyrir ungt fólk á aldrinum 14 - 30 ára sem valið hefur sér lífsstíl án áfengis og annarra vímuefna. Á þinginu var lagt fram starfsáætlun 2011 og kosin ný stjórn hreyfingarinnar. Stjórninni er ætlað að fylgja eftir starfsáætlun m.a. að stofna [...]
Málþing IOGT: Bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð
IOGT Málþing IOGT: Bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð IOGT á Íslandi boðar til málþings um forvarnamál í Norræna húsinu mánudaginn 24. janúar nk. Á málþinginu verða fjögur erindi en yfirskrift þess er „IOGT, hugmyndin um bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð“. Fyririrlesarar verða Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, Helgi Skúli Kjartansson, sagnfræðingur, Róbert H Haraldsson, heimspekingur og Kjell-Ove Oscarsson, formaður [...]
Áfengiskaup foreldra viðbót við aðra drykkju
Áfengi Áfengiskaup foreldra viðbót við aðra drykkju Sú hugmynd að foreldrar geti komið í veg fyrir neikvæðar afleiðingar áfengisneyslu með því að kaupa áfengi fyrir börn sín á ekki við nein rök að styðjast. Þetta sagði Kjartan Ólafsson, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri á ráðstefnu um íslenskar æskulýðsrannsóknir sem haldið var 5. nóvember síðastliðinn. Þau ungmenni sem keypt [...]
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

