IOGT
Málþing IOGT: Bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð

IOGT á Íslandi boðar til málþings um forvarnamál í Norræna húsinu mánudaginn 24. janúar nk. Á málþinginu verða fjögur erindi en yfirskrift þess er „IOGT, hugmyndin um bindindi, öfgar eða samfélagsleg ábyrgð“. Fyririrlesarar verða Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, Helgi Skúli Kjartansson, sagnfræðingur, Róbert H Haraldsson, heimspekingur og Kjell-Ove Oscarsson, formaður Norræna Góðtemplararáðsins. Málþingið er öllum opið og eru í boði IOGT á Íslandi. Fundarstjóri verður Árni Einarsson.
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.