Fréttir2025-03-11T12:28:43+00:00

Fréttir

2602, 2025

Heilbrigðisráðherra afdráttarlaus um áfengismálin.

Alma Möller, heilbrigðisráðherra, var afar skýr í máli í viðtali á Rás tvö í dag (26. febrúar) um mikilvægi einkasölu ríkisins á áfengi. Hún tekur þar við keflinu af fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, sem einnig var á sama máli. Alma lýsti í viðtalinu yfir afdráttarlausum stuðningi við núverandi fyrirkomulag á smásölu áfengis og varaði við því að markaðsöflin tækju hana yfir. Þar vísaði hún meðal annars í nýja [...]

112, 2016

,,Við hljótum að hafa gert eitthvað rétt“

,,Við hljótum að hafa gert eitthvað rétt“ Á árlegri ráðstefnu NordAN (Nordic Alcohol and Drug Policy Network), sem haldin var í Osló dagana 14. – 16. október, var fjallað um þróunina í ávana- og vímuefnamálum ungmenna í Evrópu. Í yfirskrift ráðstefnunnar, Við hljótum að hafa gert eitthvað rétt, er vísað til þess að þróunin hefur almennt verið á réttri leið í löndum Evrópu, sérstaklega á Norðurlöndunum. Í [...]

2811, 2016

Árlega látast um það bil eitt þúsund Svíar úr krabbameinum sem rakin eru til áfengisneyslu.

Árlega látast um það bil eitt þúsund Svíar úr krabbameinum sem rakin eru til áfengisneyslu. Árlega látast um það bil eitt þúsund Svíar úr krabbameinum sem rakin eru til áfengisneyslu. Samkvæmd nýrri skýrslu sem gefin hefur verið út á vegum sænsku læknasamtakanna (SLS), bindindissamtakanna IOGT-NTO í Svíþjóð og rannsóknamiðstöðvarinnar CERA við Gautaborgarháskóla og kynnt var í dag látast árlega um það [...]

211, 2016

Vilja að rafsígarettur falli undir tóbaksvarnalög

Rafsígarettur Vilja að rafsígarettur falli undir tóbaksvarnalög Samstarf félagasamtaka í forvörnum, SAFF, vill að brugðist sé við aukinni notkun rafsígaretta meðal ungmenna sem nýjar rannsóknir sýna. Samkvæmt þeim hafa rúmlega 25% nemenda í 10. bekk prófað rafrettur í ár, sem er um 11% aukning frá því í fyrra. Leggja samtökin til að rafrettur falli undir tóbaksvarnalög, m.a. til þess að takmarka [...]

2605, 2016

Bættur lífsstíll gæti komið í veg fyrir helming krabbameinstilfella

Krabbamein Bættur lífsstíll gæti komið í veg fyrir helming krabbameinstilfella Í grein sem segir frá niðurstöðum nýrrar rannsóknar og birtist í tímaritinu JAMA Oncology í maí er því haldið fram að koma mætti í veg fyrir allt að helming dauðsfalla vegna krabbameina í Bandaríkjunum ef landsmenn hættu öllum reykingum, drægju úr áfengisneyslu, héldu líkamsþyngd í skefjum og hreyfðu sig í það minnsta í [...]

2603, 2012

Dropinn er Dönum dýr

Áfengi Dropinn er Dönum dýr Í greinagerð sem heilbrigðisstofnun Danmerkur, DSI, lét gera nýlega, kom í ljós að ofneysla áfengis kostar sveitarfélög í Danmörku meira en þrjá milljarða danskra króna á hverju ári. Það samsvarar rekstri 100 grunnskóla.  Sveitarfélögin í landinu verja 3,1 milljörðum árlega vegna fólks sem er í áfengismeðferð eða hefur þurft að leita til heilbrigðisþjónustunnar vegna vandamála sem [...]

1503, 2012

Velferð barna, þremur árum eftir Hrun

Náum áttum Velferð barna, þremur árum eftir Hrun Morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 21. mars nk. kl. 08.15 - 10.00 á Grand hótel.  Umræðuefni fundarins er velferð barna þremur árum eftir Hrun.  Erindi flytja Sigríður Jónsdóttir, félagsfræðingur hjá velferðarráðuneytinu, en hún segir frá Félagsvísum ungs fólks úr nýrri skýrslu Velferðarvaktarinnar; Halldór S Guðmundsson, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, fjallar um [...]

603, 2012

Fíkniefnahundar leita fíkniefna í sænskum skólum

Hundar Fíkniefnahundar leita fíkniefna í sænskum skólum Fíkniefnahundar verða látnir leita fíkniefna í framhaldsskólum í Landskrona í Suður-Svíþjóð frá og með komandi vori til þess að bregðast við jákvæðari viðhorfum til fíkniefna. Hundarnir verða látnir skoða skápa nemenda, salerni og anddyri. Finnist eitthvað verða nemendur sem tengjast málum settir í fíkniefnapróf. Þetta fyrirkomulag hefur einnig verið notað í Jämtaland í Norður-Svíþjóð og Noregi. [...]

2602, 2012

Málþing Bara gras? í Hagaskóla

Hundar Málþing Bara gras? í Hagaskóla Miðvikudaginn 29. febrúar verður haldið málþingið Bara gras? í Hagaskóla í Reykjavík. Að þessu sinni mun Andrés Magnússon, geðlæknir fjalla um fíkn og skaðsemi kannabisneyslu, hvað er kannabis, um líkamleg áhrif kannabis á unga neytendur, hvernig þróast fíkn og hver er áhættan? Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn fjallar um afskipti lögreglu vegna kannabismálum,  Ásta Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri [...]

2302, 2012

Áfengi eykur hættu á brjóstakrabba

Krabbamein Áfengi eykur hættu á brjóstakrabba Meirihluti danskra kvenna er með erfðafrávik sem veldur því að áfengisneysla eykur hættuna á að þær fái brjóstakrabbamein við og eftir tíðahvörf, að sögn fréttavefjar Berlingske. Danskir vísindamenn urðu fyrstir til að varpa ljósi á ferli sem veldur því að líkaminn fer að framleiða kvenhormónið estrógen á því tímaskeiði þegar draga ætti úr því samkvæmt [...]

2102, 2012

Áfengismælar í franska bíla

Frakkland Áfengismælar í franska bíla Frá og með júlí næstkomandi verða allir ökumenn í Frakklandi skyldaðir til að vera með áfengismæli í bifreiðum sínum. Með þessum lögum vilja stjórnvöld þar í landi herða tökin í baráttunni gegn ölvunarakstri og gera ökumönnum kleift að athuga sjálfir hvort þeir séu færir um að stjórna ökutæki. Ef ökumenn eru stöðvaðir af lögreglu og [...]

1302, 2012

Náum áttum: Barnasáttmálinn

Náum áttum Náum áttum: Barnasáttmálinn Náum áttum, opinn samstarfshópur um fræðslu- og forvarnamál efnir til morgunverðarfundar á Grand Hóteli næstkomandi miðvikudag, 15. febrúar 2012, kl. 8:15–10:00.  Yfirskrift fundarins er „Ábendingar barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna“.  Erindi flytja Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, Barnasáttmálinn og umboðsmaður barna, Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu: Barnasáttmálinn og barnavernd og María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu: Barnasáttmálinn, fyrirtakan og viðbrögð.  Í lok fundarins verða [...]

802, 2012

Danir ráðast gegn reykingum

Reykingar Danir ráðast gegn reykingum Danska ríkisstjórnin hefur sagt tóbaksreykingum barna og unglinga stríð á hendur. Meðal annars stendur til að hækka bann við reykingum úr 16 árum í 18. Bannað verður með öllu að reykja jafnt utandyra sem innan á leikskólum, í skólum, á frístundaheimilum og dagvistarstofnunum þar sem yngri en 18 ára dvelja. Bannið nær ekki einungis til [...]

3001, 2012

Langflest afbrot hér á landi tengd áfengi og fíkniefnum

Afbrot Langflest afbrot hér á landi tengd áfengi og fíkniefnum Fjórðungur allra fanga á landinu situr inni vegna fíkniefnabrota. Árið 1990 var hlutfallið sjö prósent. Fíkniefnabrot eru flokkuð sem slík þegar alvarlegasta brot sem viðkomandi hefur framið er tengt fíkniefnalöggjöfinni. Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun, segir fíkniefni þó tengjast mun fleiri afbrotum en þeim sem formlega eru skráð sem fíkniefnabrot. „Ef [...]

3001, 2012

Líklegt að fíkniefni séu framleidd á Íslandi til útflutnings

Fíkniefnaframleiðsla Líklegt að fíkniefni séu framleidd á Íslandi til útflutnings Í nýrri skýrslu frá ríkislögreglustjóra er talið líklegt að fíkniefni séu framleidd hér á landi til útflutnings. Vísbendingar um umfang framleiðslunnar bendi til þess að hún sé ekki öll til heimabrúks. Í skýrslunni segir m.a.: Fyrirliggjandi upplýsingar eru á þann veg að framleiðsla á örvandi efnum og marijúana hafi stóraukist [...]

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

    Fræðsla og forvarnir

    Hverafold 1-3, 112 Rekjavík

    Phone: +354 861 1582

    Go to Top