Rafsígarettur
Hefur áhyggjur af vaxandi notkun rafretta hjá börnum og ungmennum
Í heimildarmynd frá BBC, Rafrettur- gæfa eða glapræði, er fjallað um rafrettur og áhrif þeirra á heilsuna og umhverfið. Í henni kemur m.a. fram að eftir einungi mánaðarnotkun greindust bólgur í öndunarvegi og í slímhúð hafði svokölluðum átfrumum fjölgað í lungunum en þær framkalla hvata sem geta skaðað öndunarveginn ef áreitið verður of mikið í langan tíma.
Í viðtali á RUV.is segir Karl Andersen hjartalæknir þessar niðurstöður ekki koma á óvart. „Þetta er auðvitað aðskotahlutur fyrir lungun að anda að sér heitum nikótín vökva.“ Aðspurður hvort hann taki undir sjónarmið þeirra að rafrettur séu betri kostur fyrir reykingamenn sem vilja hætta að reykja þá segist hann ekki vilja fullyrða um hvort það sé betri kostur að reykja rafrettur á meðan rannsóknir um mögulega skaðsemi þeirra séu af skornum skammti.
Karl segist hafa mikla áhyggjur af vaxandi notkun rafretta hjá börnum og ungmennum og samkvæmt könnununum sé það að aukast. Hann segir einnig mjög alvarlegt mál að leyfa rafreyttureykingar í opinberum byggingum á meðan lítið sé vitað um hvaða áhrif óbeinar rafrettureykingar hafi, þær eigi að banna eins og hefðbundnar reykingar.
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.