Ölvunarakstur

Hert löggjöf um ölvunarakstur

Alsherjarnefnd hefur afgreitt þingsályktunartillögu sem felur meðal annars í sér að skoða lækkun refsimarka ölvunaraksturs úr 0,5 prómillum í 0,2. 

Sex þingmenn Framsóknarflokksins mæltu fyrir tillögunni og var hún samþykkt einróma í Alsherjarnefnd í síðustu viku.

Nefndin leggur til þess að þingsályktunartillagan verði samþykkt. Hún hljóðar svo: 

Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að láta yfirfara viðurlög við ölvunar- og vímuefnaakstri við heildarendurskoðun umferðarlaga með það að markmiði að fækka slíkum tilvikum. Sérstaklega skuli skoða eftirfarandi leiðir:

  1. Lækkun refsimarka ölvunaraksturs úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill og samsvarandi mæling öndunarsýnis.
  2. Námskeið um alvarleika ölvunar- og vímuefnaaksturs.
  3. Hækkun sektargreiðslna vegna ölvunar- og vímuefnaaksturs og að hluti þeirra renni í forvarnasjóð.
  4. Ný úrræði í viðurlögum við ölvunar- og vímuefnaakstri.

Vísir.is  19. mars 2014

Deila þessari frétt

Nýlegar fréttir

Safn

Flokkar

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.