Fréttir2025-03-11T12:28:43+00:00

Fréttir

1010, 2026

Innviðaráðherra sammála forvarnasamtökum um ólögmæti netsölu áfengis.

Samtökin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, áttu fund með Eyjólfi Ármannssyni, innviðaráðherra, þann 19. ágúst síðastliðinn. Tilefni fundarins af hálfu samtakanna var einkum að ræða nýlegt svar ríkisstjórnar Íslands til ESA um stöðu áfengissölumála á Íslandi. Í svarinu kemur meðal annars fram að viðskiptamódel eins og Smáríkið notar sé ólöglegt. Ráðherrann tók undir það [...]

609, 2025

Góður fundur með Embætti landlæknis – samfélagskostnaður áfengisneyslu og neysla ungmenna.

Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu þann 28. ágúst síðastliðinn, góðan fund með starfsfólki Embættis landlæknis. Fundurinn snerist um samspil lýðheilsu og stóraukinnar netsölu áfengis sem átt hefur sér stað hérlendis í meira en hálfan áratug. Lögreglan hefur nú ákært eina slíka sölu. Netsala þessi hefur farið fram í andstöðu við lýðheilsustjórnvalda til ársins 2030 sem samþykkt var samhljóða á Alþingi. Á fundinum var rætt um þann mikla samfélagskostnað sem óhófleg [...]

1806, 2025

Hálfur áratugur liðinn frá kæru ÁTVR vegna ólöglegrar netsölu áfengis. Enn hefur ekkert gerst. Óskiljanlegur seinagangur og sorglegur vitnisburður um vanvirka stjórnsýslu og meðvirk stjórnvöld að mati forvarnasamtaka.

Þann 16. júní 2025, voru nákvæmlega fimm ár síðan ÁTVR kærði ólöglega netsölu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Netsölu sem er ólögleg því hún selur áfengi í smásölu af lager á Íslandi til neytenda. Lögreglan hefur ekki klárað þetta samfélagslega mikilvæga mál á fimm árum, hálfum áratug. Engar skýringar hafa verið gefnar á því. Á meðan spretta upp ólöglegar áfengissölur og selja fyrir milljarða króna og hirða þannig fjármagn sem betur [...]

304, 2025

Innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf. Jóhann Friðrik hefur áður lagt fram hliðstæðar tillögur í þinginu, en þær ekki hlotið brautargengi. Er það miður, því hér er á ferðinni afar brýnt verkfæri stjórnsýslunnar til þess að ,,… meta bein og óbein áhrif stjórnsýsluákvarðana og lagasetningar á lýðheilsu“, eins og segir í tillögunni. Í henni segir [...]

1603, 2025

Hve mikill gæti samfélagslegur kostnaður orðið við að leggja ÁTVR niður?

Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, lagði 13. mars síðastliðinn fram fyrirspurn á Alþingi til fjármála- og efnahagsráðherra um mögulegan samfélagslegan kostnað af áfengisneyslu verði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins verður lögð niður. Fyrirspurnin er eftirfarandi: 1.      Er ráðherra sammála því að ætla megi að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu á ári sé 2,6% af vergri landsframleiðslu í hátekjulöndum, líkt og haldið var fram í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í nóvember árið 2024, og hafi [...]

2611, 2024

Ávana- og vímuefnamál á Fundi fólksins.

Á lýðræðishátíðinni Fundi fólksins, sem haldinn verður haldinn í Hörpunni föstudaginn 29. nóvember næstkomandi, verður meðal annars á dagskrá málstofa um ávana- og vímuefnamál. Yfirskrift fundarins er Ávana- og vímuefni – áskoranir í forvörnum. Er baráttan töpuð? Fundurinn er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig. Umræðustjóri er Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna-félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu. Þátttakendur í umræðuhópnum eru: Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn [...]

2211, 2024

Norræna áfengisstefnan er sjálfbær leið til lýðheilsu.

Í áratugi hafa Norðurlöndin verið leiðandi í áfengisstefnu þar sem lýðheilsa, öryggi og samfélagsleg velferð er í forgangi. Há gjöld á áfengi, auglýsingabann og ríkisstýring á smásölu áfengis eru hornsteinar þessarar stefnu. Með þessari stefnu hefur tekist að halda áfengisneyslu tiltölulega lágri og draga úr þeirri byrði sem tjón vegna hennar veldur samfélaginu. Á aðalfundi  NordAN sem haldinn var í Osló 7. nóvember síðastliðinn var samþykkt ályktun þar sem [...]

2011, 2024

Villta vestrið í áfengissölu og notkun nikótínpúða stóreykst -Svör framboða til alþingiskosninga 2024 um nikótínpúða og ÁTVR.

Forvarnarsamtökum hafa borist svör við tveimur spurningum sem sendar voru í lok október til framboða sem bjóða fram á landsvísu til Alþingis þann 30. nóvember n.k. Spurningarnar tengjast mikilvægum lýðheilsumálum sem hafa verið áberandi í samfélagsumræðu síðustu mánaða og ára. Spurt var: Telur flokkur þinn rétt að stemma stigu við aukinni notkun nikótínpúða meðal barna og ungmenna? Ef já, til hvaða aðgerða viltu að stjórnvöld grípi? Vill flokkur þinn [...]

1410, 2024

Bús og bleikur október.

Það var ótrúlega ósmekklegt af dómsmálaráðherra að kynna, og leggja í samráðsgátt, frumvarp um að heimila einkaaðilum vefsölu á áfengi á sama tíma og Krabbameinsfélagið hleypti af stokkunum Bleiku slauf­unni, ár­legu ár­vekni- og fjár­öfl­un­ar­átaki félagsins í októbermánuði, til­einkað bar­átt­unni gegn krabba­meini hjá kon­um. Frumvarp ráðherrans felur í sér aukið aðgengi að áfengi sem reikna má með að leiði af sér aukna áfengisneyslu sem gengur þvert gegn áherslum og ábendingum [...]

210, 2024

Endurmetum umræðuna og goðsagnirnar um áfengi.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hleypir í dag af stokkunum verkefninu Redefine alcohol for a healthier, safer, and happier Europe. Verkefnið, sem stendur yfir mánuðina október og nóvember, er liður í átaki sem hófst árið 2022 (WHO/EU Evidence into Action Alcohol Project (EVID-ACTION)) og hefur að markmiði að kynna rannsóknarniðurstöður sem leggja má til grundvallar opinberri stefnu í þeirri viðleitni að sporna gegn áfengistengdum vanda í ríkjum Evrópu, meðal annars með krabbameinsforvarnir [...]

2708, 2024

Skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um um einkasölu ÁTVR á áfengi.

FRÆ-fræðsla og forvarnir eru meðal fimmtán félagasamtaka sem vinna að forvörnum og heilsueflingu og félaga heilbrigðisstétta á Íslandi sem hvetja stjórnvöld til þess að bregðast við netsölu áfengis í áskorun sem send var alþingismönnum, ráðherrum og fjölmiðlum í gær, 26. ágúst 2024. Í áskoruninni taka félögin undir orð heilbrigðisráðherra um þá yfirstandandi ógn sem nú steðjar að grundvallarmarkmiðum lýðheilsu vegna meintrar ólöglegrar netsölu áfengis, sem [...]

707, 2024

Forsendur lýðheilsu séu virtar á borði en ekki einungis í orði.

Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu góðan fund með Sigurði Inga Jóhannssyni, fjármála- og efnahagsráðherra 3. júlí síðastliðinn um ólöglega netsölu áfengis. Þökkuðu fulltrúarnir honum fyrir að hafa brugðist við og sent  lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu erindi vegna netsölunnar þar sem meðal annars er vakin athygli á að hún kunni að fela í sér brot á lögum, enda smásala áfengis bönnuð öðrum en ÁTVR. Ráðherrann var hvattur til þess að fylgja málin eftir, einnig [...]

2906, 2024

Samanhópurinn vill afstýra því að netsala áfengis verði heimiluð. Veljum umhyggju í stað frjálshyggju og segjum nei við auknu aðgengi að áfengi.

Í yfirlýsingu sem birt er á vefsíðu hópsins segir að Ísland hafi í áratugi verið þekkt fyrir að sporna gegn áfengisnotkun barna og ungmenna. Stór þáttur í þessum árangri sé að á Íslandi er takmarkað aðgengi að áfengi, meðal annars ríkisrekin áfengisverslun, takmarkaður opnunartími og 20 ára aldursmark til áfengiskaupa. Það sé því merkilegt að fylgjast með því hve ákveðnir aðilar í stjórnkerfinu leggi mikla [...]

2706, 2024

Samræmast fjárfestingar í áfengisiðnaðinum starfs- og siðareglum, stefnum og markmiðum lífeyrissjóða?

Að þessu spyr Björn Sævar Einarsson, formaður IOGT á Íslandi, í áhugaverðri grein á visir.is 20. júní síðastliðinn. Hann segir þar meðal annars: Að fjárfesta í áfengisiðnaðinum vinnur gegn markmiðum lífeyrissjóðanna, því áfengisneysla veldur sjúkdómum og elliglöpum þannig að lífeyrisþegar njóta skertra lífsgæða á eftirlaunaárunum. Áfengisneysla veldur einnig snemmbærum dauða, þannig að lífeyrisþegar njóta færri eftirlaunaára, eða sumir jafnvel deyja áður en þeir komast á [...]

3105, 2024

Krabbameinsfélagið skorar á stjórnvöld að taka skýra afstöðu með lýðheilsu og fólkinu í landinu, virða gildandi lög og reglur og auðvelda ekki aðgengi að áfengi, tóbaks- og nikótínvörum.

Í ályktun aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem haldinn var 25. maí síðastliðinn er meðal annars heilbrigðisráðherra hvattur til þess, í samstarfi við önnur stjórnvöld, að setja forvarnir í forgang, með virkum stjórnvaldsaðgerðum til að efla lýðheilsu. Margir erlendis horfi til Íslands varðandi árangur í forvarnarmálum, tóbaksvörnum og áfengisneyslu ungmenna sérstaklega. Standa þurfi vörð um þennan árangur og gera enn betur. Aðalfundurinn skorar á stjórnvöld að taka skýra [...]

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.

    Fræðsla og forvarnir

    Hverafold 1-3, 112 Rekjavík

    Phone: +354 861 1582

    Go to Top