FRÆ-fræðsla og forvarnir eru meðal fimmtán félagasamtaka sem vinna að forvörnum og heilsueflingu og félaga heilbrigðisstétta á Íslandi sem hvetja stjórnvöld til þess að bregðast við netsölu áfengis í áskorun sem send var alþingismönnum, ráðherrum og fjölmiðlum í gær, 26. ágúst 2024.
Í áskoruninni taka félögin undir orð heilbrigðisráðherra um þá yfirstandandi ógn sem nú steðjar að grundvallarmarkmiðum lýðheilsu vegna meintrar ólöglegrar netsölu áfengis, sem fram komu í opinberu bréfi ráðherra þann 5. júní síðastliðinn.
Í áskorun félaganna er minnt á að í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að starfrækja skuli ÁTVR og að markmið laganna sé að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum.
Meðal annars í ljósi þess að Hagkaup, sem er rótgróið og umsvifamikið fyrirtæki og er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða stefnir að því að hefja áfengissölu á netinu á næstu dögum, skora félögin á yfirvöld að skera tafarlaust úr um lögmæti netsölu áfengis.
Félögin vísa einnig til lýðheilsustefnu Alþingis til ársins 2023 þar sem segir að Íslendingar stefni að því að vera á meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu og að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun.
Félögin skora á yfirvöld að hvika hvorki frá lýðheilsustefnunni né markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.
Breiðfylking félaganna samanstendur af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagi lýðheilsufræðinga, Félagi sjúkraþjálfara, Ljósmæðrafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands, Sálfræðingafélagi Íslands, Sjúkraliðafélagi Íslands, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Lyfjafræðingafélagi Íslands, Félagi áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf ifélagasamtaka í forvörnum.
Áskorun félaganna er eftirfarandi:
Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga, Félag sjúkraþjálfara, Ljósmæðrafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum:
- Taka undir orð heilbrigðisráðherra um þá yfirstandandi ógn sem nú steðjar að grundvallarmarkmiðum lýðheilsu vegna meintrar ólöglegrar netsölu áfengis, sem fram komu í opinberu bréfi ráðherra þann 5. júní sl.
- Í tilefni þess að rótgróin íslensk verslanakeðja, Hagkaup, áætlar að hefja áfengissölu til neytenda á næstu dögum skora félögin á yfirvöld að kveða strax upp úr um hvort slík sala sé lögleg. Yfirvöld geta ekki horft aðgerðarlaus á þá lýðheilsuógn sem nú steðjar að vegna stóraukinnar netsölu áfengis á Íslandi.
- Í samþykktri stefnu Alþingis um lýðheilsustefnu til ársins 2030 segir að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu og að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun. Í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að starfrækja skuli ÁTVR og að markmið laganna sé að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum.
- Félögin skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um um einkasölu ÁTVR á áfengi.