Saman fari orð og aðgerðir

Fræðsla og forvarnir fagna því að vinna við stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum til ársins 2035 sé komin á lokastig. Skýr, heildstæð og markviss stefna er einn helsti hornsteinn árangurs í lýðheilsu. Hún skapar ramma sem verndar heilsu almennings, dregur úr skaða og styður við samfélagslega ábyrgð. Hún er þó marklítil ef henni er ekki fylgt eftir í framkvæmd og ef stjórnvöld sýna henni ekki þá virðingu og eftirfylgd sem nauðsynleg er til að tryggja raunverulegan árangur.

Samtökin hvetja til þess að lýðheilsumat verði innleitt í íslenska löggjöf og að tryggt verði, og fylgt fast eftir, að breytingar í ávana- og vímuefnamálum fari ávallt í gegnum lýðheilsumat.

Samtökin benda einnig á að árangur í áfengis- og vímuvarnarmálum byggir á samstarfi ríkis, sveitarfélaga, fagfólks, almannaheillasamtaka og samfélagsins alls. Með slíkri samvinnu er lagður grunnur að sjálfbærri og mannúðlegri stefnu sem miðar að bættri lýðheilsu og auknum lífsgæðum til framtíðar.

Ómetanlegt hlutverk almannaheillasamtaka í forvörnum og lýðheilsu á Íslandi

Almannaheillasamtök og félagsamtök gegna lykilhlutverki í forvörnum og lýðheilsu á Íslandi. Þau starfa oft nær fólki en opinberar stofnanir, byggja upp traust í samfélaginu og ná til hópa sem annars gætu fallið utan formlegs kerfis. Með því að vinna á vettvangi daglegs lífs, í skólum, frístundastarfi, hverfum og meðal jaðarsettra hópa, eru samtökin ómissandi hlekkur í lýðheilsukeðjunni auk þess að vera stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald.

Styrkur almannaheillasamtaka felst meðal annars í sveigjanleika þeirra og nálægð við aðstæður fólks. Þau þróa úrræði sem taka mið af reynslu, jafningjastarfi og samfélagslegum aðstæðum og geta brugðist hratt við nýjum áskorunum. Í forvörnum snýst árangur ekki einungis um reglur og boð (þótt mikilvæg séu), heldur einnig um tengsl, stuðning og valdeflingu – þar skipta félagsamtök sköpum.

Í lýðheilsustarfi gegna þessi samtök einnig mikilvægu hlutverki í vitundarvakningu, baráttu gegn fordómum og hagsmunagæslu. Þau minna á að heilsa er ekki aðeins einstaklingsbundið mál, heldur samfélagslegt verkefni sem tengist aðgengi, jöfnuði og mannréttindum. Reynslan sýnir að þegar fólk fær rödd, stuðning og raunverulegt val aukast líkur á betri heilsu og virkri samfélagsþátttöku.

Almannaheillafélög hafa í gegnum tíðina gegnt lykilhlutverki í lýðheilsumálum á Íslandi, þar á meðal í ávana- og vímuefnamálum. Þessi samtök hafa verið öflug rödd fyrir forvarnir, gagnreyndar lausnir og hagsmuni samfélagsins í heild í nánu samstarfi við fagfólk og þau sem málin snerta beint.

Fræ, ásamt fleiri almannaheillafélögum, hefur síðustu misseri lagt sérstaka áherslu á að standa vörð um áfengismálastefnuna á Íslandi og unnið ötullega að því að komið verði böndum á ólöglega netsölu áfengis. Sú vinna endurspeglar þá mikilvægu staðreynd að stefna ein og sér nægir ekki – hún þarf að vera lifandi, virt og studd með skýrum aðgerðum. Þegar stjórnvöld og samfélagið í heild standa saman um slíkan ramma skapast forsendur fyrir varanlegan árangur í lýðheilsu.

  • Samtökin leggja áherslu á að til að hámarka áhrif almannaheillasamtaka þarf að tryggja þeim skýrari stöðu í stefnumótun, stöðugt og fyrirsjáanlegt fjármagn og virkt samráð við hið opinbera. Við bendum á mikilvægi þess að Lýðheilsusjóði verði beitt af meiri þunga í þessa veru en nú er gert. Forvarnir og lýðheilsa verða ekki byggðar upp af stjórnvöldum einum, þótt hlutverk þeirra sé mikilvægt. Þær verða til í samvinnu – þar sem samfélagið sjálft er virkur þátttakandi. Það eru því vonbrigði hvað hlutur almannaheillasamtaka er rýr í skýrslunni.

Takmarkanir á aðgengi að áfengi – ásókn markaðsafla og ábyrgð stjórnvalda

Ein helsta áskorunin í áfengismálum í dag er að standa gegn stöðugri ásókn um að koma áfengi sífellt meira og víðar á markað. Ágengni áfengisiðnaðarins, knúin áfram af hagnaðarvon, setur þrýsting á stefnumótun og ákvarðanir sem eiga í grunninn að snúast um lýðheilsu, ekki viðskiptahagsmuni. Áfengi er samfélaginu dýrt, bæði í formi heilsutjóns, félagslegs kostnaðar og álags á opinbera þjónustu, og ber að taka á því í samræmi við þann raunverulega kostnað sem neysla þess veldur.

Síðustu ár hafa ólöglegar netverslanir með áfengi sprottið upp og fengið að þrífast og blása út í skjóli athafnaleysis stjórnvalda. Þessi þróun grefur undan gildandi áfengismálastefnu og skapar hættulegt fordæmi þar sem regluverk er virt að vettugi. FRÆ, ásamt fleiri almannaheillasamtökum, hefur unnið ötullega að því að vekja athygli á þessari starfsemi og knýja á um að hún verði stöðvuð. Nú fyrst hillir undir að látið verði reyna á lögmæti hennar. Þetta undirstrikar þá staðreynd að stefna, hversu skýr sem hún kann að vera, verður að lokum orðin tóm ef henni er ekki fylgt eftir af ábyrgð og festu af hálfu stjórnvalda.

  • Samtökin fagna því að í skýrslunni kemur fram afdráttarlaus stuðningur við þá meginstoð í íslenskri áfengismálastefnu og ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að takmarka beri aðgengi að áfengi eins og kostur er, bæði almennt og á stöðum, eins og segir í skýrsunni, sem ,,hafa sérstakt samfélagslegt hlutverk, eins og íþróttavöllum eða hjúkrunarheimilum … hjá netverslun eða með heimkeyrslu. Enda geti það ýtt undir aukna notkun áfengis. Þar að auki getur óskýr lagarammi eða skortur á eftirfylgni meðlögum grafið undan trausti og virði forvarna.

Um mikilvægi forvarna í ávana- og vímuefnamálum

Forvarnir í ávana- og vímuefnamálum er bæði gagnreynd og skynsamleg leið til að stuðla að bættri lýðheilsu og draga úr samfélagslegum skaða og kostnaði. Forvarnir miða að því að koma í veg fyrir eða seinka upphafi neyslu og eru þannig áhrifaríkasta leiðin til að minnka líkur á þróun fíknsjúkdóma og fleiri sjúkdóma og tilheyrandi heilsufars- og félagslegum afleiðingum.

Reynsla og rannsóknir sýna að snemmtækar og markvissar forvarnir, sérstaklega meðal barna og ungmenna, skila verulegum árangri. Með því að styrkja félagsfærni, auka vitund um áhættu, tryggja aðgengi að upplýsingum um skaðsemi og draga úr áhættuþáttum í umhverfi einstaklinga er hægt að hafa varanleg áhrif á neyslumynstur. Slíkar aðgerðir þurfa að vera markvissar, fjölþættar og viðvarandi til þess að hægt sé að komast hjá erfiðari og dýrari úrræðum sem grípa þarf til þegar vandi er orðinn rótgróinn.

Forvarnir eru jafnframt fjárhagslega hagkvæmar fyrir samfélagið. Kostnaður vegna ávana- og vímuefnavanda fellur á marga þætti samfélagsins, þar á meðal heilbrigðiskerfi, félagsþjónustu og réttarkerfi. Fjárfesting í forvörnum dregur úr þessum kostnaði til lengri tíma og stuðlar að betri nýtingu opinbers fjármagns.

  • Íhlutun og meðferð eru gerð góð skil í skýrslunni, bæði hvað varðar greiningu og leiðir til úrbóta. Samtökin sakna þess að minna er gert úr forvarnaþættinum og hlutverki þeirra sem að þeim koma, svo sem skólum á öllum stigum, æskulýðs- og forvarnastarfi, hvort heldur á vegum sveitarfélaga – félagsmiðstöðvar – , eða íþrótta- og tómstundafélaga; svo og á vettvangi ýmissa almannaheillasamtaka sem vinna að lýðheilsu og forvörnum, ekki síst samtökum foreldra.

Áhrif neyslu áfengis eru víðtæk

Tjónið sem neysla áfengis veldur einstaklingum, fjölskyldum og samfélaginu í heild einskorðast ekki við fíknsjúkdóma. Neysla áfengis hefur víðtækar og alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar og tengist fjölda annarra sjúkdóma, þar á meðal lifrarsjúkdómum, hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameinum, geðrænum kvillum og aukinni áhættu á slysum og ofbeldi. Áhrifin takmarkast því ekki við heilbrigðiskerfið eitt og sér. Áfengisneysla veldur verulegu álagi á félagsmálakerfið, dómskerfið og aðra opinbera þjónustu, meðal annars vegna fjölskylduvanda, vanrækslu, heimilisofbeldis og afbrota. Þessi víðtæki samfélagslegi kostnaður undirstrikar mikilvægi þess að taka á áfengismálum með heildstæðum og ábyrgum hætti.

  • Samtökin telja að taka þurfi þessa þætti í ríkari mæli inn í stefnuna og með sambærilegum hætti og gert er með fíknsjúkdóma.

 

Unnin af Árna Einarssyni fyrir FRÆ- Fræðslu og forvarnir – Félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu.

 

Nánar um málið.

Við værum þakklát ef þú deilir þessari frétt ...

Nýlegar fréttir

Safn

Flokkar