Í dag veitti heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, viðtöku sérstakri lýðheilsuhvatningu til stjórnvalda. Að hvatningunni stendur breiðfylking 17 félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka. Í henni eru alþingismenn og ráðherrar hvattir til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.
Hvatningin er sett fram af tvíþættu tilefni:
- Annars vegar vegna svara ríkisstjórnarinnar til ESA þann 21. apríl sl. um að netsala áfengis á Íslandi sé, samkvæmt niðurstöðu ríkisstjórnarinnar, byggð á ólöglegu viðskiptamódeli.
- Hins vegar vegna þess að nú í júní eru liðin 6 ár frá kæru ÁTVR á hendur netsölu áfengis og segja félögin að það sé áhyggjuefni hve seint hefur gengið að fá niðurstöðu í mál er varða mikilvæga lýðheilsu-og samfélagshagsmuni.
Í hvatningunni fagna félögin 17 því að í svörum ríkisstjórnarinnar til ESA er því komið skýrt á framfæri að það viðskiptamódel netsölu áfengis, sem tekist hefur verið á um á Íslandi síðustu árin, er ólöglegt að mati ríkisstjórnarinnar. Héraðsdómur Reykjaness komst að sömu niðurstöðu þann 8. apríl síðastliðinn.
Félögin lýsa ánægju með að í drögum að stefnu í áfengis-og vímuvarnarmálum til 2035 taki heilbrigðisyfirvöld mið af áherslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um að draga úr skaðlegri notkun áfengis með gagnreyndum forvarnaraðgerðum, en skýrsla stofnunarinnar frá 2025 sýnir að áframhaldandi einkasala ríkisins á áfengi er mikilvægt lýðheilsumál.
Félögin ítreka fyrri áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis frá 26. ágúst 2024.
Þá er sparnaðarráð þeirra, Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka ofl., sem birt var í samráðsgátt þann 21. janúar 2025, ítrekað.
Að hvatningunni standa:
- Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
- Félag lýðheilsufræðinga
- Ljósmæðrafélag Íslands
- Læknafélag Íslands
- Sálfræðingafélag Íslands
- Sjúkraliðafélag Íslands
- Félagsráðgjafafélag Íslands
- Lyfjafræðingafélag Íslands
- Iðjuþjálfafélag Íslands
- Þroskaþjálfafélag Íslands
- Félag sjúkraþjálfara
- Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa
- SÁÁ
- Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu
- Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum
- IOGT á Íslandi
- SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum
Mynd: Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tekur við lýðheilsuhvatningu 17 félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka. Frá vinstri: Aðalsteinn Gunnarsson framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Árni Guðmundsson formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum og Björn S. Einarsson formaður IOGT á Íslandi.


