Mánudaginn 24. ágúst síðastliðinn kom Anna Wangenheim, heilbrigðisráðherra Grænlands, í heimsókn til FRÆ ásamt sex manna fylgdarliði. Anna var stödd hér á landi í tengslum við fund norrænna heilbrigðisráðherra, sem haldinn var í Reykjavík. Anna er jafnframt þingmaður fyrir Demokraatit á Grænlandi.
Í heimsókn sinni til Íslands vildi ráðherrann nýta tækifærið til þess að kynna sér ýmis málefni og stofnanir sem tengjast þeim verkefnum sem eru á dagskrá í grænlenskri heilbrigðisstefnu. Meðal annars vinnur hún að mótun langtíma, gagnreyndrar áfengisstefnu, og hafði í því samhengi áhuga á að fá nánari innsýn í fræðslu- og forvarnarstarf á Íslandi, helstu verkefni, skipulag starfsemi FRÆ og reynslu Íslendinga af forvörnum.
Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ, fór yfir áherslur og forsendur FRÆ í forvarnamálum og helstu þætti starfseminnar. Hann rakti helstu þætti í stefnu Íslendinga í ávana- og vímuefnamálum og forvörnum og ræddi sérstaklega reynslu Íslendinga síðustu þrjátíu ár og leið Íslendinga í að ná árangri í að draga úr áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna. Árni fjallaði einnig um reynsluna og mikilvægi samstarfs foreldra, ríkis, sveitarfélaga, skóla og frjálsra félagasamtaka í forvörnum. Helstu áskoranir á sviði ávana- og vímuefnamála á Íslandi í dag taldi hann meðal annars vera innkomu rafretta og nýrra nikótínvara á markaðinn og mikla aukningu ungmenna á notkun nikótíns; auðveldara aðgengi að áfengi á netinu með starfsemi ólöglegra netasala áfengis; aukinn þrýsting og ágengni frá viðskiptalegum hagsmunum samhliða mikilli aukningu á markaðssetningu og áfengistengdum auglýsingum. Allt þetta stuðli að aukinni normaliseringu á áfengisneyslu. Hann sagðist einnig finna fyrir umtalsverðu almennu sinnuleysi gagnvart forvörnum og minnkandi pólitískum stuðningi við forvarnir og stefnu sem tekur mið af lýðheilsu og dregið hafi úr beinum fjárveitingum til fræðslu og forvarna.
Anna hefur sem þingmaður og ráðherra lagt áherslu á að einblína ekki eingöngu á viðbrögð og meðferð sjúkdóma heldur byggja upp heilbrigðiskerfi sem getur líka unnið markvisst að forvörnum.
Anna hefur unnið að því að aðlaga klassíska norræna lýðheilsuhugsun að samfélagi sem er í mörgu ólíkt öðrum norrænum samfélögum og áskoranirnar aðrar. Nálgun hennar er því e.t.v. í stuttu máli sú, að aðlaga þurfi forvarnir að því samfélagi sem fólk býr í, fremur en að vera einfaldlega innflutt fyrirmynd.
Áskoranir Grænlendinga í þessum efnum eru margvíslegar, svo sem dreifðar byggðir, fámenni, miklar vegalengdir, skortur á heilbrigðisstarfsfólki og sú staðreynd að hluti sérhæfðrar þjónustu þarf að fara fram í Danmörku. Anna hefur lagt mikla áherslu á að byggja upp getu innan Grænlands til þess að sinna lýðheilsu og forvörnum, ekki síst með menntun og mönnun.
Á meðfylgjandi mynd eru Anna Wangenheim, heilbrigðisráðherra Grænlands, og Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ.


