Í gær, 15. desember, heimsóttu fulltrúar breiðfylkingar forvarnarsamtaka nýjan forstjóra ÁTVR, Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur og aðstoðarforstjóra ÁTVR, Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur.

Á þessum góða fundi óskuðu samtökin nýjum forstjóra velfarnaðar í starfi. Þá kynntu samtökin lýðheilsu- og forvarnarstarf sitt gagnvart m.a. óhóflegri neyslu áfengis og nikótíns. Samkvæmt lögum er forsenda þess að reka ÁTVR sú að hafa a) umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð,b) að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu og c) að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum. Allar þessar forsendur eru stef í vinnu forvarnarsamtakanna.

Þá var rætt um umfangsmikla netsölu fjölda aðila á áfengi sem deilt hefur verið um. Þá sölu telur ÁTVR, eins og forvarnarsamtökin, ólöglega og kærði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þann 16. júní 2020. Eftir að málið lá hjá lögreglu í rúm 5 ár lauk rannsókn á netsölu með ákæru lögreglu í lok ágúst 2025. Ákæran er nú til meðferðar hjá héraðsdómi.

Á fundinum lögðu fulltrúar samtakanna áherslu á að byggja áfengismálastefnu á því sem talið er árangursríkast á hverjum tíma. Þar undir fellur að smásala áfengis sé í höndum opinberra aðila. Samtökin hafa eftir bestu getu staðið vörð um það fyrirkomulag og beitt sér gegn tilraunum til þess að grafa undan því. Samtökin hafa því undanfarið gagnrýnt skeytingarleysi stjórnvalda sem ríkir gagnvart þeirri netsölu áfengis sem fram fer hér á landi og samtökin telja ólöglega. Í skjóli þessa skeytingarleysis hafa sprottið upp ólöglegar áfengissölur sem selja fyrir milljarða króna og hirða þannig fjármagn sem betur væri að rynni í ríkiskassann til að greiða fyrir neikvæðar afleiðingar óhóflegrar áfengisdrykkju. Sú staða er auðvitað með ólíkindum að mati samtakanna.

Myndatexti:

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Siv Friðleifdóttir, félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum og Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna – félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu

Við værum þakklát ef þú deilir þessari frétt ...

Nýlegar fréttir

Safn

Flokkar