Vika 43
Yfirlýsingu Viku 43 undirrituð af velferðarráðherra
Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir undirritaði einnig yfirlýsingu Viku 43
Kveðið er á um þennan rétt barnanna m.a. í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, stefnumörkun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Í yfirlýsingunni er bent á mikilvægi þess að börn og ungmenni hafni neyslu áfengis og annarra vímuefna, enda stafi þeim ýmis hætta af neyslu þeirra. Sterk tengsl séu á milli áfengis- og vímuefnaneyslu annars vegar og ofbeldis, óábyrgs kynlífs, umferðarslysa og ýmissa slysa og óhappa, hins vegar. Einnig er bent á að mörg börn og ungmenni verði einnig fórnarlömb neyslu annarra, innan fjölskyldu sem utan, s.s. vegna vanrækslu, fátæktar, ofbeldis, misnotkunar og sundraðra fjölskyldna. YFIRLÝSINGIN
Það er ósk þeirra sem standa að yfirlýsingunni að fram fari umræða um hvernig þessi réttur barnanna er virtur á ýmsum sviðum samfélagsins, s.s. við stefnumótun og lagasetningu, í uppeldis- og skólastarfi, íþrótta- og tómstundastarfi og hvarvetna þar sem börn koma við sögu.
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.