Vika 43

Vímuvarnavikan 2010 – Vika 43

  1. – 30. október

Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns, til þess að vekja athylgi á forvarnastarfi og áfengis- og vímuefnamálum:
– Skapa vettvang fyrir samstarf félagasamtaka um að vekja athygli á stefnumörkun í áfengis- og vímuefnamálum, einkum forvörnum.
– Varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og það starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka.
– Vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum.
– Virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfs.

ÞÁTTTAKA ÞJÓÐAR Í VÍMUVÖRNUM
Í Viku 43 er að þessu sinni minnt á nauðsyn samstöðu og samstarfs allra við að uppræta markaðssetningu vímuefna, sérstök athygli verður vakin á áróðri fyrir neyslu kannabisefna.  Á heimasíðu vímuvarnavikunnar, www.vvv.is er að finna upplýsingar um dagskrá og viðburði Viku 43.

Skráningar á opnunardagskrá í Þjóðleikhúsinu 26. október  HÉR eða með tölvupóst til vika43@forvarnir.is
Skráningar á morgunverðarþing í Þjóðleikhúskjallara 28. október  HÉR

Deila þessari frétt

Nýlegar fréttir

Safn

Flokkar

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.