Fréttir
Nikótínpúðanotkun ungs fólks á Norðurlöndunum hlutfallslega hæst á Íslandi. Tóbaksiðnaðurinn herjar á unga fólkið og Íslendingar að dragast aftur úr nágrannaþjóðum í tóbaks- og nikótínvörnum
Fyrir skömmu sendu Samtök norrænu krabbameinsfélaganna (NCU) bréf til framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, Ursulu von der Leyen, og Olivér Várhelyi, framkvæmdastjóra heilbrigðismála, þar sem þau eru hvött til að beita sér fyrir því að tóbaksreglugerðir ESB verði tafarlaust endurskoðaðar. Fjallað er um bréfið á vefsíðu Krabbameinsfélagins. Tillögur NCU um aðgerðir eru í takt við markmið krabbameinsáætlunar ESB (Europe's Beating Cancer Plan) og ganga út á að tryggja að reglugerðir nái bæði yfir [...]
Aukið aðgengi að áfengi eykur kostnað samfélagsins – Seljendur hagnast, öll önnur tapa.
,,Viðhorfsbreyting er einnig nauðsynleg í viðleitni til að koma böndum á vaxandi kostnað samfélagsins vegna áfengissjúkdóma en hann er árlega u.þ.b. sá sami og rekstur Landspítalans kostar. Jafnvel þó við næðum ekki að spara nema helminginn þá dygði það til þess að búa nægilega vel að öldruðum og ungum þannig að innlagningar á ganga eða í gáma og biðlistar eftir nauðsynlegum meðferðum hjá ungum fíklum heyrðu sögunni til.“ Á [...]
ÁTVR er einn af hornsteinunum í áfengismálastefnu Íslendinga.
Í gær, 15. desember, heimsóttu fulltrúar breiðfylkingar forvarnarsamtaka nýjan forstjóra ÁTVR, Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur og aðstoðarforstjóra ÁTVR, Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur. Á þessum góða fundi óskuðu samtökin nýjum forstjóra velfarnaðar í starfi. Þá kynntu samtökin lýðheilsu- og forvarnarstarf sitt gagnvart m.a. óhóflegri neyslu áfengis og nikótíns. Samkvæmt lögum er forsenda þess að reka ÁTVR sú að hafa a) umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu [...]
Góður fundur með Embætti landlæknis – samfélagskostnaður áfengisneyslu og neysla ungmenna.
Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu þann 28. ágúst síðastliðinn, góðan fund með starfsfólki Embættis landlæknis. Fundurinn snerist um samspil lýðheilsu og stóraukinnar netsölu áfengis sem átt hefur sér stað hérlendis í meira en hálfan áratug. Lögreglan hefur nú ákært eina slíka sölu. Netsala þessi hefur farið fram í andstöðu við lýðheilsustjórnvalda til ársins 2030 sem samþykkt var samhljóða á Alþingi. Á fundinum var rætt um þann mikla samfélagskostnað sem óhófleg [...]
Hálfur áratugur liðinn frá kæru ÁTVR vegna ólöglegrar netsölu áfengis. Enn hefur ekkert gerst. Óskiljanlegur seinagangur og sorglegur vitnisburður um vanvirka stjórnsýslu og meðvirk stjórnvöld að mati forvarnasamtaka.
Þann 16. júní 2025, voru nákvæmlega fimm ár síðan ÁTVR kærði ólöglega netsölu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Netsölu sem er ólögleg því hún selur áfengi í smásölu af lager á Íslandi til neytenda. Lögreglan hefur ekki klárað þetta samfélagslega mikilvæga mál á fimm árum, hálfum áratug. Engar skýringar hafa verið gefnar á því. Á meðan spretta upp ólöglegar áfengissölur og selja fyrir milljarða króna og hirða þannig fjármagn sem betur [...]
Innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.
Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf. Jóhann Friðrik hefur áður lagt fram hliðstæðar tillögur í þinginu, en þær ekki hlotið brautargengi. Er það miður, því hér er á ferðinni afar brýnt verkfæri stjórnsýslunnar til þess að ,,… meta bein og óbein áhrif stjórnsýsluákvarðana og lagasetningar á lýðheilsu“, eins og segir í tillögunni. Í henni segir [...]
Hve mikill gæti samfélagslegur kostnaður orðið við að leggja ÁTVR niður?
Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, lagði 13. mars síðastliðinn fram fyrirspurn á Alþingi til fjármála- og efnahagsráðherra um mögulegan samfélagslegan kostnað af áfengisneyslu verði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins verður lögð niður. Fyrirspurnin er eftirfarandi: 1. Er ráðherra sammála því að ætla megi að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu á ári sé 2,6% af vergri landsframleiðslu í hátekjulöndum, líkt og haldið var fram í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í nóvember árið 2024, og hafi [...]
Hvað hefur verið gert í fjármála- og efnahagsráðuneytinu á undanförnum fimm árum, á grundvelli skatta- og tollalaga, til að hafa eftirlit með því að innflutningur og sala áfengis fari fram með löglegum hætti? Stendur til að leggja ÁTVR niður og liggur fyrir lýðheilsumat á áhrifum þess?
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra, og Ingibjörg Ísaksen þingflokksformaður flokksins, hafa lagt fram þrjár fyrirspurnir til núverandi fjármála- og efnahagsráðherra, um sölu áfengis með tilliti til skatta- og tollalaga, eftirlit ráðuneytisins með sölu áfengis og hvort stefnt sé að því að leggja ÁTVR niður. Sigurður Ingi lagði fram eftirfarandi fyrirspurn á Alþingi 3. mars síðastliðinn til eftirmanns síns í ráðuneytinu og óskar [...]
Frábær fundur með félags- og húsnæðismálaráðherra – Velferð barna fer ekki saman við aukið aðgengi að áfengi.
Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu í gær, 12. mars 2025, góðan fund með Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um samspil lýðheilsu, velferðar barna og stóraukinnar netsölu áfengis á Íslandi. Rætt var um félagslegar afleiðingar óhóflegrar áfengisneyslu s.s. vanrækslu barna, ofbeldis í nánum samböndum og meðal hópa barna, örorku, fötlunar, minni framleiðni, slysa- og sjúkdómabyrði. Þá er neysla áfengis oft upptaktur að fíkniefnaneyslu barna- og ungmenna. Ráðherrann tók hópnum fagnandi og [...]
Skammt að bíða niðurstöðu í kæru vegna ólöglegrar netsölu áfengis.
Fulltrúar Breiðfylkingar forvarnasamtaka áttu í fyrradag (5. mars 2025) góðan og upplýsandi fund með Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, ásamt fulltrúum frá ákærusviði embættisins, um stöðu kæru sem ÁTVR lagði fram á hendur aðilum sem selja áfengi í smásölu og afhenda neytendum beint af lager sem er á Íslandi, fyrir tæpum 5 árum, eða þann 16. júní 2020. Í bréfi samtakanna frá 14. febrúar síðastliðnum, þar sem óskað er [...]
Sandra nýr formaður FRÆ.
Á aðalfundi FRÆ, sem haldinn var 24. Febrúar síðastliðinn, urðu formannaskipti í FRÆ. Sandra Heimisdóttir var þar kjörin formaður í stað Heimis Óskarssonar, sem verið hefur formaður frá árinu 2015. Þar áður var Heimir í stjórn félagsins frá árinu 2012. Önnur í stjórn FRÆ voru kjörin: Linda Björg Þorgilsdóttir, Guðlaug Birna Guðjónsdóttir, Heimir Óskarsson og Aðalsteinn Gunnarsson. Sandra hefur setið í stjórn FRÆ frá árinu 2017 og þekkir því vel [...]
Heilbrigðisráðherra afdráttarlaus um áfengismálin.
Alma Möller, heilbrigðisráðherra, var afar skýr í máli í viðtali á Rás tvö í dag (26. febrúar) um mikilvægi einkasölu ríkisins á áfengi. Hún tekur þar við keflinu af fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, sem einnig var á sama máli. Alma lýsti í viðtalinu yfir afdráttarlausum stuðningi við núverandi fyrirkomulag á smásölu áfengis og varaði við því að markaðsöflin tækju hana yfir. Þar vísaði hún meðal annars í nýja [...]
Vinnustofa um hagnýtar aðferðir í meðferð og bata.
Þeir sem glíma við hinar ýmsu fíknir þurfa að horfast í augu við þann veruleika að hafa misst stjórn á neyslu og/eða hegðun. Þá fer það ferli í gang að komast í svokallað „fráhald“ frá efnum og hegðunum og síðan tekur við bataferli þar sem viðkomandi tileinkar sér nýjar hegðunarreglur til að fara eftir til að ná og viðhalda „bata“. Hlutverk ráðgjafa er að styðja við þetta ferli. FRÆ, [...]
Ekki boðlegt að lögreglan hunsi kæru ÁTVR út í hið óendanlega.
,,Forvarnarsamtök fagna því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin láti sig varða fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi og vísi í því samhengi til lögreglukæru sem enga niðurstöðu hafi hlotið. Af þessu tilefni vilja forvarnarsamtök enn árétta margítrekaðar beiðnir til lögreglunnar um að leiða til lykta kærur sem ÁTVR lagði fram á hendur netsölu fyrir tæpum 5 árum, eða þann 16. júní 2020, netsölu sem selur í smásölu beint af innlendum lager til neytenda. Með [...]
Góður fundur með Ölmu Möller heilbrigðisráðherra.
Það er okkur áhyggjuefni að svo virðist sem viðtækt sinnuleysi ríki gagnvart netsölu áfengis af hálfu stjórnvalda, sem gjarnan vísa í að lagaleg óvissa sé til staðar en gera þó ekkert til þess að eyða þeirri ætluðu óvissu fyrir atbeina dómstóla (ef með þarf) þannig að hægt sé að leggja fram afdráttarlausa staðfestingu á því hvort það fyrirkomulag sem er á netsölu áfengis hér á landi stenst lög eða [...]
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.




