Ungmenni

Forvarnir og sjálfsmynd ungmenna

Samstarfsráð um forvarnir hefur sent frambjóðendum til alþingiskosninga 2013 og verðandi alþingismönnum áminningu um mikilvægi forvarna og kalla eftir því að stjórnmálaflokkar og stjórnvöld hafi skýra stefnu í þessum málum og skipi þeim þann sess sem þeim ber í velferð þjóðarinnar. Samstarfsráðið býður fram þátttöku sína og liðsinni við mótun forvarnastefnunnar og framkvæmd hennar.

Í áminningunni er m.a. bent á að stjórnvöld hafi það hlutverk að marka opinbera stefnu í ávana- og vímuefnamálum og forvörnum og tryggja framkvæmd hennar, m.a. með nauðsynlegu fjármagni. En til þess að sú stefna verði annað en stafur á bók verður hún að njóta stuðnings borgaranna, eða hinnar svokölluðu grasrótar. Þar geta félagasamtök leikið mikilvægt hlutverk.

Samstarfsráðið bendir á að félagasamtök hafa lengstum haft frumkvæði  í ávana- og vímuvörnum á Íslandi og saga forvarna á Íslandi einkennst af frumkvæði og virkni almannasamtaka með þeim ágæta árangri að áfengisneysla og reykingar Íslendinga eru með því minnsta sem þekkist í Evrópu og staða okkar varðandi önnur vímuefni er sömuleiðis góð í samanburði við nágrannaþjóðir. Þennan ávinning og stöðu verðum við að verja.

Félagasamtök búa yfir margvíslegum möguleikum í forvörnum. Félagasamtök leggja með starfi sínu, samfélagsumræðu og verkefnum menningarlegan og lýðræðislegan grundvöll að velferð samfélagsins og eflingu félagsauðs. Þau eru þverskurður af samfélaginu með félagsfólk á öllum aldri, af báðum kynjum og starfa í þéttbýli sem dreifbýli. Félagasamtök byggja tilvist sína á sjálfsprottinni félagslegri þörf og starf þeirra grundvallast á samfélagslegri ábyrgð, samlíðan og borgaravitund.

Félagasamtök eru í náinni snertingu við grasrótina og daglegt líf fólks. Fyrir vikið hafa þau annars konar möguleika í samfélaginu en stjórnvöld. Þau geta t.d. nýtt tengslanet sín til þess að virkja sjálfboðaliða í nærsamfélaginu á skömmum tíma og þátttaka þeirra getur haft margfeldniáhrif í samfélaginu. Félagasamtök hafa einnig meira frelsi, svigrúm og sveigjanleika til athafna en stjórnvöld. Þau eru skapandi afl sem getur boðið fjölþættar lausnir.

ÁSKORUN 2013 í PDF

Deila þessari frétt

Nýlegar fréttir

Safn

Flokkar

Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.