Kannabis
Um 83% á móti lögleyfingu kannabisefna

Í könnun sem MMR-Markaðs- og miðlarannsóknir ehf gerðu dagana 3. – 5. nóvember sögðust um 83% svarenda vera andvíg lögleiðingu á neyslu kannabisefna en um 17% sögðust því fylgjandi. Svarendur voru á aldrinum 18-67 ára og valdir handahófskennt úr þjóðskrá.
Af þeim sem tóku afstöðu voru 68,1% sem kváðust mjög andvígir, 15,0% sögðust frekar andvígir, 9,1% voru frekar fylgjandi og 7,8% sögðust mjög fylgjandi. Að samanlögðu voru 83,1% sem sögðust andvíg því að neysla kannabisefna yrði gerð lögleg á Íslandi en 16,9% voru því fylgjandi.
Nokkur munu reyndist á afstöðu svarenda eftir kyni, aldri og heimilistekjum. Af þeim sem tóku afstöðu voru 25,0% karla, samanborið við 9,1% kvenna, sem sögðust fylgjandi því að neysla kannabisefna yrði gerð lögleg á Íslandi. Þá sögðust 34,6% þeirra sem tóku afstöðu á aldrinum 18 til 29 ára sem sögðust fylgjandi því að neysla kannabisefna yrði gerð lögleg samanborið við 13,5% í aldurshópnum 30-49 ára og 7,1% í aldurshópnum 50-67 ára. Að lokum kváðust 38,3% þeirra sem tóku afstöðu og búa á heimilum með mánaðartekjur undir 250 þúsund krónum sem kváðust fylgjandi því að neysla kannabisefna yrði gerð lögleg samanborið við 11,6-16,2% í öðrum tekjuhópum.
Ef karlar á aldrinum 18-29 ára eru skoðaðir sérstaklega þá kemur í ljós að 51% þeirra sem tóku afstöðu segjast fylgjandi því að neysla kannabisefna yrði gerð lögleg á Íslandi. Þetta er töluvert hærra hlutfall en meðal kvenna í sama aldurshópi, en 19,4% þeirra sögðust því fylgjandi að neysla kannabisefna yrði gerð lögleg.
Skráðu þig á póstlista og fáðu nýjustu fréttir frá Fræðslu og forvörnum.