Samtökin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, áttu fund með Eyjólfi Ármannssyni, innviðaráðherra, þann 19. ágúst síðastliðinn. Tilefni fundarins af hálfu samtakanna var einkum að ræða nýlegt svar ríkisstjórnar Íslands til ESA um stöðu áfengissölumála á Íslandi. Í svarinu kemur meðal annars fram að viðskiptamódel eins og Smáríkið notar sé ólöglegt. Ráðherrann tók undir það mat, enda hefur hann við ýmis tækifæri bent á það á vettvangi Alþingis að smásala áfengis sé lögum samkvæmt óheimil öðrum en ÁTVR.
Samtökin ræddu einnig við ráðherrann og gerðu athugasemd við að Pósturinn dreifir áfengi fyrir Smáríkið (póstþjónusta, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu, fellur undir innviðaráðherra sbr. skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands) og hefur gefið út sameiginlega tilkynningu með þeim á fyrri stigum sbr. fréttir frá september 2024 Pósturinn dreift áfengi fyrir Smáríkið í hálft ár. Þá hefur Pósturinn auglýst það samstarf upp www.facebook.com/reel/475059072017391
Á meðfylgjandi mynd eru: Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, Siv Friðleifsdóttir, félagi í Fræðslu og forvörnum-félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna-félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og Björn S. Einarsson, formaður IOGT á Íslandi.


