Breiðfylking forvarnarsamtaka, félögin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum fagna að í svari ríkisstjórnarinnar við fyrirspurn ESA um um netsölu áfengis, sölu áfengis í fríhöfninni og lögin um sölu áfengis af framleiðslustað kveði ríkisstjórnin afdráttarlaust upp úr um að netsala áfengis eins og hún er framkvæmd á Íslandi er ólögleg.

Forsaga málsins er sú að þann 13. nóvember sl. kvörtuðu Samtök verslunar og þjónustu undan íslenskum stjórnvöldum til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna smásölu áfengis af hálfu ríkisins samkvæmt upplýsingum af vef Samtaka verslunar og þjónustu og upplýsingum ESA.

Þann 13. mars sl. sendi ESA fjármála- og efnahagsráðuneytinu sjö tilgreindar spurningar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið svaraði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar þann 21. apríl síðastliðinn.

Í svörunum er fjallað um netsölu áfengis, sölu áfengis í fríhöfninni, lögin um sölu áfengis af framleiðslustað og fleira.

Breiðfylking forvarnarsamtaka, félögin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, óskuðu eftir spurningunum og svörum íslenskra stjórnvalda á grundvelli upplýsingalaga þar sem um almannahagsmuni er að ræða. Fjármála- og efnahagsráðuneytið afhenti þeim gögnin mánudaginn 11. maí síðastliðinn.

Í yfirlýsingu forvarnarsamtaka sem send var út í dag  fagna samtökin því að í svörum til ESA kveði ríkisstjórnin afdráttarlaust upp úr um að netsala áfengis eins og hún er framkvæmd á Íslandi er ólögleg. Í yfirlýsingunni er bent á að: ,,Áfengissölukerfið sé byggt á markmiðum um vernd lýðheilsu og sé hluti af víðtækari áfengisstefnu sem felur meðal annars í sér takmarkanir á auglýsingum, aldurstakmörk, leyfisskyldu fyrir veitingu áfengis og strangt eftirlit með smásöludreifingu.

Þá svarar ríkisstjórnin því til að þær lögbundnu undantekningar sem hafa verið gerðar á áfengissölukerfinu hingað til séu að hennar mati þröngar, skýrt afmarkaðar og grafi ekki undan samræmi eða virkni þess.”

Sjá spurningar ESA

Sjá svör ríkisstjórnarinnar á ensku

Sjá svör ríkisstjórnarinnar í íslenskri þýðingu forvarnasamtakanna