Fræðsla og forvarnir (FRÆ), ásamt UMFÍ og Krabbameinsfélagi höfuðborgarsvæðisins hafa útbúið fjögur stutt fræðslumyndbönd um áhrif nikótíns á ungt fólk. Í myndböndunum er fjallað um skaðsemi reyklauss tóbaks og ávinninginn af því að sleppa því, bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu. Öll þessi félög hafa áratuga reynslu af fræðslu- og forvarnarstarfi. Myndböndin eru fjögur og bera yfirskriftina Taktu stjórnina! Í þeim er fjallað á einfaldan og myndrænan hátt um hvernig nikótínfíkn myndast, áhrif nikótíns á heilann, svefn, líkamann og tannhold, og ávinninginn af því að sleppa nikótíni. Myndböndin eru frjáls til notkunar án endurgjalds.
Myndböndin byggjast á fræðsluefni Dr. Láru G. Sigurðardóttur læknis, eru stutt og með texta og njóta sín því bæði með og án hljóðs. Þau eru til í lóðréttu og láréttu sniði og henta vel:
- á skjám í anddyri eða við afgreiðslu íþróttahúsa og sundlauga.
- á viðburðum, mótum og fundum íþrótta- og ungmennafélaga.
- á samfélagsmiðlum félaga.
- sem kveikja að samtali á æfingum eða í kennslustundum.
- Hér má skoða myndböndin: https://myndir.umfi.is/s/o/xucqhfr8MJ6sbWfQ
- Þeim fylgja einnig umræðuspurningar sem þjálfarar og kennarar geta notað: https://www.umfi.is/verkefni/reyklaust-tobak/
Myndböndin eru stutt og hentug til að opna samtal við ungt fólk við ýmsar aðstæður, svo sem á íþróttaæfingum, í skólanum eða heima. Það eru engin rétt eða röng svör í þeim hugleiðingum sem settar eru fram í umræðuspurningunum sem fylgja myndböndunum, markmiðið er að fá ungmennin til að hugsa sjálf.
- Hvað þýðir það fyrir þig að „taka stjórnina“?
- Hvers vegna heldur þú að 12,3% framhaldsskólanema noti nikótínpúða daglega?
- Hvernig er hægt að segja nei við vin sem býður manni nikótín?
- Hvert getur maður leitað ef maður vill hætta?
Samtökin þrjú sem standa að gerð myndbandanna stóðu einnig fyrir málþingi undir yfirskriftinni Málþing um nikótín og heilsu þann 11. október 2022. Umfjöllunarefni þess var áhrif nikótíns á heilsu, notkun þess, fíkn, fræðsla, viðhorf Íslendinga og lög um nikótínvörur sem samþykkt voru í júní 2022. Fyrirlestrar málþingsins voru teknir upp og eru aðgengilegir á slóðinni: https://www.youtube.com/watch?v=WNErqztb4E0
Samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis (september 2026) nota 12,3% framhaldsskólanema á landinu nikótínpúða daglega, eða um einn af hverjum átta. Félögin telja nauðsynlegt að bregðast af festu við nikótínnotkun ungmenna, einkum notkun nikótínpúða. Mikilvægt er að ná fram hugarfarsbreytingu í samfélaginu sem fyrst, þannig að notkun reyklauss tóbaks teljist ekki lengur eðlileg. Með öflugri fræðslu og vitundarvakningu um skaðsemi nikótíns má snúa vörn í sókn.
Félögin hlutu vorið 2022 styrk frá Lýðheilsusjóði til þess að taka höndum saman og vinna að forvarnarverkefni gegn reyklausu tóbaki og eru málþingið og myndböndin afrakstur þess.


